Innlent

Dr. Bjarni er látinn

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Bjarni Hjaltested Þórarinsson heitinn.
Bjarni Hjaltested Þórarinsson heitinn. Aðsend

Bjarni Hjaltested Þórarinsson listamaður, sem iðulega var kallaður dr. Bjarni, er látinn. Bjarni var 78 ára gamall. 

Guðmundur Oddur Magnússon, Goddur, vinur hans og kollegi staðfestir andlátið í samtali við fréttastofu. Hann deilir um leið texta sem hann tók saman um lífstíð Bjarna. 

Þar rekur Goddur meðal annars ævi og störf vinar síns en Bjarni fæddist 1. mars 1947 í Reykjavík og þar bjó þar lengst af. Bjarni starfaði sem myndlistamaður, skáld, höfundur og sjónháttafræðingur.

Bjarni útskrifaðist frá nýlistadeild Magnúsar Pálssonar við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hann var meðal stofnenda gallerísins Suðurgötu 7 og tímaritsins Svarts á Hvítu á áttunda áratug síðustu aldar. Þá var hann einn stofnenda Nýlistasafnsins. 

„Fyrir um það bil 22 árum, 21. júlí 1988, uppgötvaði Bjarni nýtt hugtak, hugtakið „sjónhátt“ sem reynst hefur honum afar notadrjúgt. Í framhaldi þess uppgötvar hann hverja nýgreinina af annarri sem hann hefur leitast við að þróa á undanförnum árum,“ segir í grein Godds. 

Í kjölfarið hafi hann uppgötvað myndgerðina Vísirós, en nálgast má umfjöllun og myndir af verkum hans á vef Safnasafnsins. Segja má að Bjarni hafi verið þekktastur fyrir myndgerðina, en á vef Listasafns Reykjavíkur er þeim henni sem mynstri sem sett er fram á bæði vísindalegan og fagurfræðilegan hátt, með ótal táknum og orðum. Hann leiki sér með tungumálið með benduheimspekilegum tilvísunum sem og sjónháttafræðina.

„Vísirósir hans eða skilningstré skipta hundruðum og er hver um sig einstök veröld sem hvergi finnst annars staðar,“ skrifar Goddur. 

„Grunnhugmyndir hans og heimsmynd er samt miklu umfangsmeiri. Ber þar fyrst að nefna stofnun Vísiakademíunnar sem er ný menntastofnun á sviði lista, hönnunar, vísinda, heimspeki, nýtt þekkingarver, sjáver, sjónver svo að eitthvað sé nefnt.“

Samhliða myndlist skrifaði Bjarni handrit, skáldsögur og ljóðabækur. Þar má helst nefna ritraðirnar Víslendingabók, Faxdælu og Heimsspringlu, ljóðabækurnar Kokka byrja Kvæsa og Kokka Kyrja Kvæsa og kvikmyndahandritið Gestaboð Co/πNikks - Led Leppelín förin.


Tengdar fréttir

Oddaflug dr. Bjarna

Einhver skæðasti myndlistarmaður þjóðarinnar – dr. Bjarni Þórarinsson – efnir til sjónþings sem heitir Oddaflug sirkilhyrninganna á menningarknæpunni Grand Rokk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×