Viðskipti innlent

Heildar­virði tæpur 91 milljarður og allir hlutir til al­mennings

Eiður Þór Árnason skrifar
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Smáranum í Kópavogi.
Höfuðstöðvar Íslandsbanka í Smáranum í Kópavogi. Vísir/Vilhelm

Heildarvirði nýafstaðins útboðs ríkissjóðs á hlutum í Íslandsbanka nemur 90,58 milljörðum króna. Heildareftirspurn útboðsins nam alls um 190 milljörðum króna og var umframeftirspurn því um 100 milljarðar króna.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið greinir frá helstu niðurstöðum útboðsins í tilkynningu en tilboðstímabilinu lauk klukkan 17 í kvöld. Útboðsgengi tilboðsbókar A var fast 106,56 krónur á útboðshlut. Á sama tíma var útboðsgengi tilboðsbókar B og tilboðsbókar C 106,56 krónur á hlut þar sem tilboð í tilboðsbók A fóru verulega umfram grunnmagn útboðsins. 

Sérfræðingar sem fréttastofa ræddi við segja að í ljósi þess að gengið er það sama sé útlit fyrir að allir hlutirnir fari í tilboðsbók A sem er aðeins ætluð almenningi en einstaklingar nutu forgangs í útboðinu. Fari svo að einhverjir muni ekki geta staðið við áskriftartilboð sín í tiboðsbók A gætu þeir hlutir farið áfram í tilboðsbók B. Bæði lögaðilar og almenningur gátu boðið í þá síðarnefndu fyrir að lágmarki tvær milljónir króna.

Von á tilkynningu í fyrramálið

Tilboð sem bárust á grundvelli tilboðsbókar A njóta forgangs við úthlutun. Þá er gert ráð fyrir að fjárfestum verði tilkynnt um úthlutun vegna tilboðsbókar A fyrir opnun markaða á morgun, þann 16. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna útboðsins.

Þar segir jafnframt að komi til þess að frekari hlutir séu í boði eftir úthlutun til einstaklinga, muni fjárfestar í tilboðsbók B og C fá upplýsingar um úthlutun á miðvikudagsmorguninn þann 21. maí.

„Um talsverða heildareftirspurn og verulega eftirspurn innanlands var að ræða í útboðinu og sýndu bæði almennir fjárfestar og fagfjárfestar, sem og innlendir og erlendir, útboðinu mikinn áhuga. Við úthlutun verður sérstök áhersla lögð á að tryggja þátttöku einstaklinga og því verða áskriftir í tilboðsbók A ekki skertar. Auk þess var leitast við að laða að stóra eftirlitsskylda fagfjárfesta þar sem eftirspurn var umtalsverð,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Fjöldi almennra hluta sem seldir voru í útboðinu eru 850.000.007 með magnaukningu. 

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×