Upp­gjörið: KA-Valur 2-5 | Vals­menn með annan stórsigurinn í röð

Árni Gísli Magnússon skrifar
Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar.
Valsmenn voru í stuðu á Akureyri í kvöld og hafa skorað flest mörk allra liða í Bestu deildinni í sumar. Vísir/Diego

Valsmenn gerðu góða ferð til Akureyrar með 5-2 sigri á KA í þrettándu umferð Bestu deildar karla í dag. Valur er áfram í 3. sæti deildarinnar á meðan KA er í fallsæti, því ellefta, og hafa nú tapað þremur leikjum í röð

Valsmenn byrjuðu leikinn mun betur og komust yfir eftir tíu mínútna leik. Hrannar Björn Steingrímsson gerðist þá sekur um slæma sendingu til baka sem fór beint fyrir fæturnar á Lúkasi Loga Heimissyni sem renndi boltanum áfram á Adam Ægi Pálsson sem renndi boltanum í autt markið.

KA menn virtust ekki vakna við þetta mark og strax í næstu sókn átti Lúkas Logi hörkuskot sem endaði í stönginni.

Það leið svo ein mínúta þangað til Valsmenn tvöfölduðu forystu sína. Adam Ægir Pálsson tók hornspyrnu frá hægri og náði Markus Nakkim að fleyta boltanum áfram af nærsvæðinu þar sem boltinn hrökk svo af Ásgeiri Sigurgeirssyni og í eigið mark.

Áfram héldu Valsmenn að herja á þá gulklæddu og komst Patrick Pedersen einn gegn markmanni og átti skot sem Jakob Snær renndi sér fyrir á elleftu stundu og bjargaði mögulega marki.

Leikurinn róaðist svo aðeins og Valsmenn héldu boltanum innan liðsins en KA gekk illa að ná sínum leik upp og virkaði lítið að reyna setja hann langan fram þar sem sóknarmaður KA var oft einn gegn fjölmörgum varnarmönnum Vals sem endaði aðeins á einn veg.

KA tókst þó að minnka muninn í uppbótartíma hálfleiksins þegar Bjarni Aðalsteinsson átti gott skot fyrir utan teig eftir að Rodri lagði boltann fyrir hann.

Staðan 2-1 í hálfleik.

Heimamenn komu beittari til leiks í síðari hálfleik en voru ekki að skapa sér nægilega góð færi. Það var því svekkjandi fyrir þá þegar Valsmenn komu boltanum í netið eftir hornspyrnu þar sem Tómas Bent Magnússon potaði boltanum inn á fjærstönginni og skoraði sitt annað mark í jafnmörgum leikjum.

Allur vindur virtist úr KA liðinu við þriðja markið og nýttu gestirnir sér það með því að bæta öðru marki við strax í næstu sókn. Sigurður Egill lyfti boltanum inn fyrir vörn KA í hlaupið hjá Albin Skoglund, sem hafði komið inn á fjórum mínútum áður, og hann setti boltann laglega yfir William Tönning í marki KA sem fór í illa tímasett úthlaup.

Á 85. mínútu kom Stefán Gísli Stefánsson inn á fyrir Valsmenn og á innan við hálfri mínútu var hann búinn að skora fimmta mark Vals með sinni fyrstu snertingu. Boltinn hrökk þá fyrir hann eftir smá atgang í teignum og hann þakkaði pent fyrir sig með marki.

Undir lok venjulegs leiktíma lagaði miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson stöðuna fyrir KA með góðu skoti fyrir utan teig en lokatölur 5-2 fyrir Val.

Atvik leiksins

Þriðja mark Vals sem Tómas Bent Magnússon skorar. Ekki glæsilegasta mark sumarsins en það kom Valsmönnum í tveggja marka forystu þegar leikur KA var að batna og í kjölfarið fylgdu tvö mörk sem kláruðu leikinn endanlega.

Stjörnur og skúrkar

Adam Ægir Pálsson bæði skoraði og lagði upp í dag og sá um öll föst leikatriði Valsmanna sem skiluðu tveimur mörkum.

Í raun var Valsliðið í heild mjög gott en einna helst er hægt að taka Tómas Bent Magnússon, Lúkas Loga Heimisson og Markus Lund Nakkim út fyrir sviga.

KA liðið var ekki gott í dag frá aftasta manni til þess fremsta og voru einstaklingsmistök einnig að kosta liðið.

Dómarinn

Leikurinn gekk sinn gang án mikilla vandræða og Vilhjálmur Alvar á hrós skilið fyrir vel dæmdan leik.

Stemning og umgjörð

Það var mikil stemning í stúkunni á sunnudaginn þegar Víkingar komu í heimsókn en það var annað uppi á teningnum í dag sem er miður. Engar trommur, söngvar eða neitt slíkt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira