Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Sindri Sverrisson skrifar 23. ágúst 2025 14:25 Hjörvar Hafliðason með treyjuna góðu frá Gumma Ben í dag. Sýn Sport Það getur allt gerst í beinni útsendingu í DocZone hjá Hjörvari Hafliðasyni og félögum. Eftir að þeir höfðu fylgst með bekkpressukeppni á Kjarvalsstöðum kom Gummi Ben óvænt í heimsókn, með enn óvæntari glaðning. Áritaða treyju með kveðju frá David de Gea.
Á treyjunni var heldur kaldhæðnisleg kveðja frá De Gea því hún var á þá leið að hann væri þakklátur Hjörvari fyrir stuðninginn í sjónvarpsútsendingum í gegnum tíðina. Brot úr þættinum, þar sem menn fylgjast með öllu því helsta í boltanum á laugardögum á Sýn Sport, má sjá hér að neðan. Klippa: Gummi færði Hjörvari treyju frá De Gea Hjörvar, eða Dr. Football, verður seint sagður mikill aðdáandi spænska markvarðarins David de Gea og talaði lengi fyrir því að Manchester United ætti að losa sig við hann. De Gea fór svo loks frá United sumarið 2023 og er nú liðsfélagi Alberts Guðmundssonar hjá Fiorentina á Ítalíu. Albert hefur því eflaust hjálpað pabba sínum við að útvega treyjuna sem hann gaf Hjörvari í dag. „Af því að það er búið að ganga svo frábærlega eftir Hjörvar losnaði frá De Gea þá erum við með kveðju hérna frá De Gea,“ sagði Gummi hress og færði Hjörvari treyjuna sem hann þakkaði kærlega fyrir. DocZone er í fullum gangi á Sýn Sport en þátturinn er á laugardögum frá 13:40 og fram yfir leikina sem hefjast klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira