Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. september 2025 15:29 Kirkjan stendur í ljósum logum. Aðsend Árásarmaður hóf skothríð í mormónakirkju í Grand Blanc í Michigan-ríki Bandaríkjanna á þriðja tímanum í dag að íslenskum tíma. Samkvæmt fyrstu fréttum hefur neyðarlínunni borist tilkynningar um fjölda fórnarlamba og að eldur logi inni í kirkjunni.
Hve mörg fórnarlömbin eru og hvert ástand þeirra er er ekki ljóst en samkvæmt staðarmiðlum hefur allt tiltækt viðbragðslið verið ræst út. Skólar, verslanir og bænahús í grennd við kirkjuna hafa hætt starfsemi tímabundið og yfirvöld biðla til íbúa svæðisins að halda sig frá. Óstaðfest myndefni af vettvangi árásarinnar sýnir mikinn reyk gjósa upp af kirkjunni og fregnir hafa borist af því að þak kirkjunnar sé við það að hrynja. Lögreglan í Grand Blanc staðfestir að skotárás hafi verið framin en að árásarmaðurinn hafi verið felldur. Ekki er tekið fram hvort það hafi verið verk lögreglunnar eða hans sjálfs. Kirkjan standi í ljósum logum. Fyrr í dag var greint frá því að æðsti leiðtogi Kirkju Jesús Krists hinna síðari daga heilögu, mormónakirkjunnar, hefði andast í gær. Ekkert bendir enn sem komið er að þetta voðaverk tengist því að nokkru leyti. Héraðsmiðillinn Fox 2 Detroit er með beina útsendingu af vettvangi.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Æðsti leiðtogi mormóna látinn Russel M. Nelson, forseti og æðsti leiðtogi Kirkju Jesús Krists hinna síðari daga heilögu, betur þekktrar sem mormónakirkjan, lést í nótt 101 árs að aldri. 28. september 2025 14:08 Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Sjá meira
Æðsti leiðtogi mormóna látinn Russel M. Nelson, forseti og æðsti leiðtogi Kirkju Jesús Krists hinna síðari daga heilögu, betur þekktrar sem mormónakirkjan, lést í nótt 101 árs að aldri. 28. september 2025 14:08