Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Atli Ísleifsson skrifar 7. október 2025 12:31 Iris Stalzervar í framboði fyrir Jafnaðarmannaflokkinn (SPD) í síðustu kosningum. Iris Stalzer, nýkjörinn bæjarstjóri í þýska bænum Herdecke, er alvarlega særð eftir stunguárás á heimili sínu.
Frá þessu greinir Der Spiegel en hún fannst á heimili sínu með lífshættulega áverka í maga og á baki eftir árásina. Ráðist var á hana fyrir utan heimilið um miðjan dag í dag en hún er sögð hafa náð að koma sér inn í húsið af sjálfsdáðum eftir árásina. Hin 57 ára Iris Stalzer var kjörin bæjarstjóri í aukakosningum þann 28. september síðastliðinn, en Herdecke er að finna í Norðurrín-Vestfalíu í vesturhluta Þýskalands. Spiegel segir að hún hafi fundist með fjölda stungusára. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hver bar ábyrgð á árásinni eða hvaða ástæður kunni að liggja að baki henni. Bild segir þó að Stalzer hafi greint syni sínum frá því að ráðist hafi verið á hana af hópi manna. Lögregla er með mikinn viðbúnað við heimili Stalzer, en hún var í framboði fyrir Jafnaðarmannaflokkinn (SPD). Stalzer hafði betur gegn frambjóðanda Kristilegra demókrata, Fabian Conrad Haas, í síðari umferð kosninganna í lok síðasta mánaðar. Hún hlaut 52,2 prósent atkvæða í kosningunum.
Þýskaland Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Sjá meira