Dóttir bæjarstjórans grunuð um árásina Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2025 13:29 Iris Stalzer fannst lífshættulega særð á heimili sínu í síðustu viku. Hún er ekki lengur í lífshættu. EPA Iris Stalzer, verðandi bæjarstjóri í þýska bænum Herdecke sem fannst alvarlega særð eftir stungusár á heimili sínu í síðustu viku, hefur greint lögreglu frá því að ættleidd dóttir hennar beri ábyrgð á árásinni.
Þetta kom fram í máli lögreglu og saksóknara á fréttamannafundi um helgina. Lögregla greindi þar jafnframt frá því að Stalzer væri ekki lengur í lífshættu. Stalzer var kjörin bæjarstjóri í bænum Herdecke í Norðurrín-Vestfalíu í lok septembermánaðar og mun hún taka við embættinu í nóvember. Mikið var fjallað um árásina í þýskum fjölmiðlum í lok liðinnar viku, en hin 57 ára Stalzer var flutt með þyrlu á sjúkrahús með fjölda stungusára. Lögregla sagði að Stalzer hefði náð að svara spurningum lögreglu á sjúkrahúsinu, en lögregla hefur ekki greint frá mögulegum ástæðum árásarinnar. Tvö börn hafi þó komið við sögu. Lögregla og sjúkralið kom að Stalzer þar sem hún sat í stól inni á heimilinu með fjölda stungusára. Að sögn lögreglu er ljóst að til átaka hafði komið í kjallaranum á heimilinu og fundust tveir hnífar sem talið er að hafi verið notaðir í árásinni. Þegar lögregla fékk upphaflega tilkynningu um árásina frá sautján ára dóttur Stalzer og fimmtán ára syni, sögðu þau að hópur manna hafi ráðist á Stalzer fyrir utan húsið og hún náð að flýja inn á heimilið. Stalzer greindi lögreglu þó frá því að það væri ekki rétt og að í raun hafi dóttir hennar ráðist á sig. Börnin tvö eru nú í umsjá félagsmálayfirvalda. Íbúar Herdecke telja um 23 þúsund.
Þýskaland Erlend sakamál Tengdar fréttir Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Iris Stalzer, nýkjörinn bæjarstjóri í þýska bænum Herdecke, er alvarlega særð eftir stunguárás á heimili sínu. 7. október 2025 12:31 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Sjá meira
Nýkjörinn bæjarstjóri alvarlega særður eftir stunguárás Iris Stalzer, nýkjörinn bæjarstjóri í þýska bænum Herdecke, er alvarlega særð eftir stunguárás á heimili sínu. 7. október 2025 12:31