Tár, kvár og kvennafrídagurinn Kristína Ösp Steinke skrifar 24. október 2025 15:02 Kvár er „kynsegin einstaklingur”.Hvorki karl né kona. Nema hann sé bæði. M.ö.o eru kynsegin einstaklingar annaðhvort konur sem kjósa að vera ekki konur, eða karlmenn. Valkvíði eða afneitun?Hversvegna kynseginvagninn er kyrfilega bundinn við réttindadag kvenna er mér hulin ráðgáta.Voru konur spurðar? Voru kvár spurð?„Konur, eruð þið til í að deila dögunum sem m.a fagna-einstakri líffræðilegri hæfni okkar til að ganga með, fæða og næra börn,-hæfileikum okkar til samskipta og samvinnu,-ótrúlegri seiglu og aðlögunarhæfni,-hugrekki og þörf okkar til þess að heyja baráttu fyrir réttlæti og jafnrétti,-kvenheilanum og kröftum okkar sem verkfæri til þess að fullkomna samfélagið þar sem þess hefur verið þörf,..með kynsegin fólki?” Þessi kosning fór framhjá mér en hún hlýtur að hafa farið fram fyrst enginn spyr upphátt hvað í ósköpunum sé í gangi? “Kvár sem ruddu leiðina…”. Fólk segir þessi orð, í þessari röð, án þess að blikka, sem er hetjudáð útaf fyrir sig. Karlmenn og konurnar sem afneita kyni sínu, taka nú þátt í kvenréttindadeginum, og það með heila lúðrasveit af klappstýrum á bakvið sig sem virðast vera í kappi við Guð almáttugan um himnaríkisstig. Hvað knýr þær áfram veit ég ekki, en ég ímynda mér að það hafi eitthvað með meðaumkun og meðvirkni að gera. Eiginleikar sem eflaust flokkast sem kvenlegir. Eiginleikar sem mögulega þyngdu róðurinn í baráttunni um toppsætið að jafnrétti.Þessi meðaumkun slær mig alltaf út af laginu af því ég horfi á samfélagið mitt beyglast undan álaginu sem þessi agnarlitli hópur „kynsegin einstaklinga” veldur.Tungumálið hefur verið afskræmt. Fólk forðast að hafa samskipti við kvár af því tungumálið hreinlega leyfir það ekki nema með málfræðifimleikaæfingum sem fólk treystir sér ekki í.Friðhelgi kvennasalerna er liðin tíð í skólum og nú má fagna tilkomu kynlausra salerna. Aukaverkanir eru að stelpur fá þvagfærasýkingar og líður illa í skólanum af því þær forðast að nota salernin, en hey: hverjum er ekki sama? Og líka: uss! Starfsfólk skóla og íþróttamannvirkja fær upplýsingar og áminningar um að fólki sé frjálst að velja sér búningsklefa eftir tilfinningu og að allir skuli sætta sig við að kynfæri kvenna geta líka verið í formi lims. Hafi einhver þörf á að setja athugasemd eða spurningamerki við þessi nýju réttindi: hatur, bakslag, hundaflaut, þjóðarmorð! Kvár fá hinsegin daga, vikur og mánuði sem fagnað er af pompi og prakt, að stærstum hluta á kostnað skattgreiðenda. Kvár eiga spes fána sem flaggað er í gríð og erg yfir höfði allra Íslendinga. Spyrji maður um hlutverk Íslenska fánans í þessu samhengi er maður stimplaður sem [insert uppnefni að eigin vali] og hundaflaut. Kvár fá sér félagsmiðstöðvar og samtök fyrir sig. Kvár fá áberandi pláss í námsgögnum, kvikmyndum, bókmenntum…Konur og karlar geta, og stundum þurfa, að sitja sérstakt námskeið til þess að læra að umgangast kvár. Konur og karlar eru kúguð til að tjá sig sem minnst um málefnið, ellegar séu þau úthrópuð hatarar, fasistar, nasistar, þjóðarmorðingjar ofl.Fólk hefur verið hrakið úr starfi fyrir að benda á að „kynsegin” fólk er ekki partur af líffræðinni eins og vísindin þekkja hana.Kúgunin hefur leitt til þess að m.a. heilbrigðis- og menntastarfsfólk hefur ekki val um annað en að taka þátt í leikritinu sem kvár setja á svið og heimta að allir taki þátt í, á kostnað réttinda kvenna.Kvár geta samt ekki barist fyrir eigin réttindum. Það sjá konur um að gera fyrir þau. Ég hef valið að nýta mér réttindi mín til tjáningar í dag, sérstaklega í ljósi ítrekaðra misheppnaðra tilrauna opinberrar stofnunar og samtaka til þess að þagga niður í mér í nafni hagsmunagæslu kvára. Gleðilegan kvenréttindadag, elsku konur. Höfundur er kennaramenntuð skúringakona og fjögurra dætra móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun