Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Serrano & LifeTrack 29. október 2025 10:01 Emil Helgi Lárusson, eigandi Serrano og Ingi Torfi Sverrisson, annar stofnanda LifeTrack. Serrano og LifeTrack eru komin í spennandi samstarf. Serrano og LifeTrack hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á nýja hollustu á ferðinni. LifeTrack-teymið hefur hannað tvo nýja rétti fyrir matseðil Serrano sem sniðnir eru að mismunandi þörfum fólks.
Annar rétturinn er léttur og næringarríkur burrito, ætlaður fólki sem vill grípa sér fljótlegan en hollan málsverð. Hinn er orkuríkur og hannaður með þarfir íþróttafólks í huga, sem vill tryggja sér góða næringu fyrir æfingar eða keppnir. Hollari valkostir í skyndibitaflóru LifeTrack hefur á stuttum tíma orðið eitt vinsælasta heilsuapp landsins og hjálpar notendum að fylgjast með mataræði, styrk og frammistöðu í íþróttum. Í appinu má einnig finna hugleiðslur, jógaæfingar og heimaæfingar sem styðja við heildræna heilsu. Með samstarfinu við Serrano vilja stofnendur LifeTrack stuðla að auknu framboði hollra valkosta í íslenskri skyndibitamenningu. „Við leitum stöðugt leiða til þess að auðvelda fólki aðgengi að hollum mat og einfalda notendum okkar lífið. Serrano er frábær kostur fyrir fólk á ferðinni sem vill velja hollan kost sem og fyrir íþróttafólk undir miklu æfingaálagi. Við bindum miklar vonir við samstarf við Serrano,“ segir Ingi Torfi Sverrisson, annar stofnanda LifeTrack. Vottun og afsláttur fyrir notendur Samhliða nýju réttunum hefur Serrano hlotið svokallaða LifeTrack vottun og allir réttir staðarins eru nú aðgengilegir í appinu. Virkir notendur LifeTrack njóta einnig afsláttarkjara hjá Serrano í gegnum vildarkerfi forritsins. „Það er gaman að vinna með fersku og drífandi fyrirtæki eins og LifeTrack. Við höfum í gegnum tíðina lagt mikla vinnu í það að vera með gott aðgengi að næringarupplýsingum á okkar réttum og því er þetta samstarf algjörlega borðleggjandi,“ segir Emil Helgi Lárusson, eigandi Serrano. App sem byggir á fagþekkingu LifeTrack-smáforritið var þróað í samstarfi við lækni, næringar- og íþróttafræðinga og hefur það markmið að hjálpa notendum að borða og hreyfa sig á meðvitaðri hátt. Appið er fáanlegt í Apple Store og Google Play undir heitinu LifeTrack Iceland. Samstarf Serrano og LifeTrack er dæmi um hvernig tækni og matur geta sameinast í þágu heilsunnar og gert hollustu aðgengilegri fyrir alla.
Matur Heilsa Veitingastaðir Mest lesið Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Lífið Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Tónlist Pósthólfið fylltist eftir að hún auglýsti eftir kærasta í Edduverðlaunaræðunni Lífið Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Lífið Rússneskur dönskukennari í Garðaskóla sem líður best á Íslandi Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Lífið Minnast Van Der Beek: „Hans verður saknað að eilífu“ Lífið Söfnun til handa fjölskyldu van der Beek fer fram úr björtustu vonum Lífið „Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“ Lífið Fleiri fréttir Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira