Rak nefndina sem átti að taka fyrir viðhafnarsalinn og sigurbogann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. október 2025 08:25 Trump ryður öllum hindrunum úr vegi sínum. Getty/Kevin Dietsch Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur rekið alla nefndarmenn nefndar sem veitir fagurfræðilega umsögn um öll byggingaráform stjórnvalda á höfuðborgarsvæðinu í Washington D.C.
Nefndin mun yfirfara og veita álit sitt á fyrirhuguðum framkvæmdum við Hvíta húsið, þar sem Trump hyggst reisa umfangsmikinn viðhafnarsal, og „sigurboga“ sem á að koma fyrir einhvers staðar í höfuðborginni. Umrædd nefnd, „Commission of Fine Arts“, er jafnan skipuð arkitektum og landslagshönnuðum og var fyrst sett á laggirnar fyrir meira en öld. Henni er ætlað að veita forsetanum, þinginu og borgaryfirvöldum ráðgjöf í skipulags- og framkvæmdamálum. Hún veitir meðal annars álit á fyrirhuguðum opinberum byggingum og minnisvörðum og Hvíta húsið hefur jafnan leitað samþykkis nefndarinnar áður en framkvæmdir eru hafnar. Þeir sex sem áttu sæti í nefndinni áður en þeim bárust uppsagnarbréf í vikunni voru skipaðir af Joe Biden, fyrrverandi varaforseta. Skipunartími þeirra eru fjögur ár. Heimildarmaður Washington Post innan Hvíta hússins staðfesti hins vegar að nefndarmennirnir hefðu fengið reisupassann og nýir yrðu skipaðir, sem væru meira fylgjandi stefnu forsetans um „Bandaríkin fyrst“. Meðlimir annarar skipulagsnefndar, National Capital Planning Commission, sem yfirfer fyrirætlanir um breytingar á ytra byrði Hvíta hússins, voru látnir fjúka í júlí síðastliðnum. Meirihluti nefndarinnar er nú skipaður stuðningsmönnum Trump.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira