Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Sindri Sverrisson skrifar 4. nóvember 2025 12:43 Hlín Eiríksdóttir og Sandra María Jessen ætla sér á HM í Brasilíu. Nú er ljóst hverjum Ísland mætir í undankeppninni. vísir/Anton Ísland verður í riðli með heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta á næsta ári.
Það er því óhætt að segja að Ísland hafi fengið martraðarriðil en fjórða liðið í riðlinum er svo Úkraína. Undankeppnin hefst í byrjun mars. Efsta lið riðilsins kemst beint á HM en hin þrjú liðin fara í tveggja umferða umspil þar sem alls 32 lið taka þátt. Varðandi það umspil er afar mikilvægt fyrir Ísland að ná að forðast neðsta sæti riðilsins og má fyrir fram búast við að sú barátta verði við Úkraínu. Neðar í greininni má lesa um hvernig umspilið virkar. Riðlarnir í A-deild undankeppninnar. Ísland er í riðli þrjú.UEFA Einnig hefur verið dregið í riðlana í B- og C-deild og má sjá þá hér að neðan. Elísabet Gunnarsdóttir stýrir Belgum sem féllu í síðasta mánuði niður í B-deild og eru þar í riðli með Skotlandi, Ísrael og Lúxemborg. Riðlarnir í B-deild. Elísabet Gunnarsdóttir stýrir Belgum sem eru í riðli fjögur.UEFA Svona eru riðlarnir í C-deild. Sigurliðin sex í riðlunum og tvö stigahæstu í 2. sæti komast áfram í HM-umspilið og mæta þar liðunum átta sem enda í 2. og 3. sæti riðlanna í A-deild.UEFA Ísland mun spila sex leiki í sínum riðli og eru þetta leikdagarnir, með fyrirvara um minni háttar tilfærslur: Leikdagur 1: Þriðjudagurinn 3. mars Leikdagur 2: Laugardagurinn 7. mars Leikdagur 3: Þriðjudagurinn 14. apríl Leikdagur 4: Laugardagurinn 18. apríl Leikdagur 5: Föstudagurinn 5. júní Leikdagur 6: Þriðjudagurinn 9. júní Leiðin á HM Í undankeppninni komast liðin fjögur sem vinna sinn riðil í A-deild beint á HM. Það er eini möguleikinn til að komast beint á HM úr undankeppninni. Öll hin liðin sem spila í A-deild komast í umspil, svo að Ísland er öruggt um að komast að minnsta kosti í umspil um sæti á HM. Það fara reyndar mjög mörg lið í umspilið eða alls 32. Þar af eru 12 lið úr A-deild, 12 úr B-deild og 8 úr C-deild, en umspilið er klárlega „þægilegast“ fyrir lið sem enda í 2. og 3. sæti í A-deild því þau mæta þá ekki neinu af 12 bestu liðum Evrópu. Hvernig virkar HM-umspilið? HM-umspilið er nokkuð flókið og skiptist í tvo hluta og tvær umferðir, og eitt Evrópulið mun svo meira að segja þurfa að fara enn lengra eða í umspil með liðum úr öðrum heimsálfum. Fyrri umferðin í umspili: Leið eitt: Liðin átta í 2.-3. sæti riðlanna í A-deild spila við liðin sex sem vinna sinn riðil í C-deild og tvö sem ná bestum árangri í 2. sæti í C-deild. Leið tvö: Liðin fjögur sem enda neðst í A-deild og liðin fjögur sem enda efst í B-deild spila við liðin átta sem enda í 2. og 3. sæti í B-deild. Um verður að ræða einvígi þar sem hærra skráða liðið spilar seinni leikinn á heimavelli. Seinni umferðin í umspili: Sigurliðin úr leið eitt í fyrri umferð mæta sigurliðunum úr leið tvö. Sigurliðin í seinni umferðinni komast svo á HM, fyrir utan eitt sem mun þurfa að halda áfram í umspil með liðum úr öðrum heimsálfum. Evrópa mun þannig eiga 11 eða 12 lið á HM í Brasilíu. Ísland hefur aldrei komist á HM en var grátlega nálægt því að komast á HM í Eyjaálfu 2023, þegar í fyrsta sinn voru 32 þjóðir með. Liðið var fyrst hársbreidd frá því að enda efst í sínum riðli en fékk á sig mark á þriðju mínútu uppbótartíma gegn Hollandi í Utrecht, og tapaði svo í framlengdum leik gegn Portúgal í umspili.
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Handbolti Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Sjá meira