Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Aron Guðmundsson skrifar 4. nóvember 2025 14:00 Ríkjandi heimsmeistarar Spánar og ríkjandi Evrópumeistarar Englands, auk Úkraínu, bíða Stelpnanna okkar í undankeppni HM 2027 í fótbolta. Vísir/Samsett Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, segir það vissulega ekki vera draumastöðu að hafa dregist með ríkjandi heims- og Evrópumeisturum í riðil í undankeppni HM 2027, verkefnið sé þó ekki óyfirstíganlegt og spennandi tilhugsun sé að taka á móti stærstu stjörnum kvennafótboltans hér heima.
Ísland verður í riðli með heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta á næsta ári og því óhætt að segja að Ísland hafi fengið martraðarriðil en fjórða liðið í riðlinum er svo Úkraína. „Þetta eru ekki draumaandstæðingarnir, heimsmeistarar Spánar og Evrópumeistarar Englands en það kom að því að við myndum einhvern tímann dragast með þeim í riðil,“ segir Þorsteinn landsliðsþjálfari í samtali við íþróttadeild. Verkefnið verðugt en ekki óyfirstíganlegt, mestu máli skipti að enda í einu af þremur efstu sætum riðilsins. Þá sé það einkar spennandi tilhugsun að taka á móti stórþjóðunum hér heima og þeirra stórskotaliði, leikmenn í hæsta gæðaflokki. „Fyrir áhugafólk um kvennaknattspyrnu á Íslandi ætti það, að fá stærstu stjörnur kvennafótboltans. á heimsvísu hingað heim, að ýta undir það að fólk mæti á völlinn. Ég hef fulla trú á því að fólk fjölmenni, sýni stuðning í verki við okkur og horfi á þessar frábæru knattspyrnukonur.“ Undankeppnin hefst í byrjun mars og er riðill Íslands í A-deild þar sem að efsta lið hvers riðils tryggir sér beint sæti á HM. Liðin í öðru, þriðja og fjórða sæti riðlanna fara í umspil og skiptir þar miklu máli að enda ekki í fjórða sæti riðilsins upp á erfiðleikastig umspilsins sem tekur við í kjölfarið. Nánari útskýringu á fyrirkomulagi komandi undankeppni má finna í eftirfarandi grein og nánar verður rætt við Þorstein landsliðsþjálfara í Sportpakkanum á Sýn í kvöld að loknum fréttum.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira