Stanslaust stuð í sokkapartýi ársins Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. nóvember 2025 14:01 DJ Sóley Bjarna þeytti skífum í partýi hjá Amnesty. Aðsend Það var líf og fjör í árlegt sokkapartý Íslandsdeildar Amnesty International sem var haldið í versluninni Andrá Reykjavík á dögunum. Síðastliðin ár hafa sokkarnir notið vinsælda og eru þeir orðnir að reglubundinni fjáröflun samtakanna.
Margt var um manninn og eflaust einhverjir sem tóku forskot á sæluna og ætla að setja sokkana í jólapakkann. Skilaboð sokkanna eru skýr. „Í ár langaði okkur til að sokkarnir töluðu til fólks sem hvatning til að nýta tjáningarfrelsið sitt og styðja við mannréttindabaráttuna. Við sjáum þar bakslag og ekki síður á Vesturlöndum. Við vildum að sokkarnir væru áminning um að hvert og eitt okkar getur haft áhrif ef við nýtum rödd okkar,“ segir Anna Lúðvíksdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International. Sokkarnir eru framleiddir í verksmiðju í Portúgal þar sem mikið er lagt upp úr sjálfbærni í framleiðsluferlinu. „Bómullin er formlega vottuð af „Cotton Made in Africa“ sem er staðall fyrir bómull í Afríku til að efla lífskjör smábænda og stuðla að umhverfisvænni bómullarframleiðslu samkvæmt ströngum skilyrðum.“ Hönnuður sokkanna í ár er Alexander Le Sage De Fontenay. Hér má sjá nánari upplýsingar um sölu á sokkunum og hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu: Skilaboðin eru Hafðu áhrif! Aðsend Skvísur sáttar með sokkana. Aðsend Gestir voru í góðum gír.Aðsend Skál í sokka!Aðsend Steinunn og Eva Katrín eigendur Andrá Reykjavík. Aðsend Eva Einars hjá Amnesty í mjög góðum félagsskap.Aðsend Forsvarsmenn Amnesty International voru í skýjunum með viðburðinn.Aðsend Glæsilegar skvísur!Aðsend Bros og sokkar!Aðsend Skvísur fyrir mannréttindi!Aðsend Skál og sokkar!Aðsend Gestir nutu ljúfra tóna og festu kaup á sokkum.Aðsend DJ Sóley var í mega fíling.Aðsend
Tíska og hönnun Mannréttindi Samkvæmislífið Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira