Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 12. desember 2025 21:06 Ármann Þór Þorlákshöfn Vísir/Hulda Margrét Njarðvík tók á móti Þór Þ. í tíundu umferðar bónus deild karla í kvöld. Leikurinn fór fram í IceMar höllinni í Njarðvík og var hin mesta skemmtun og réðist á loka andartökum leiksins. Það voru gestirnir frá Þorlákshöfn sem fóru með sigur 92-93. Leikurinn fór fjörlega af stað og voru það heimamenn sem tóku fyrst völdin og áttu fyrstu stig leiksins. Njarðvíkingar voru skrefinu framar á nær öllu sviðum í fyrsta leikhluta. Þetta virkaði allt svo rosalega auðvelt fyrir heimamenn á meðan þetta var á sama tíma oft á tíðum full erfitt fyrir gestina. Njarðvík náði mest 10 stiga forskot en Þórsarar náðu að vinna það niður. Njarðvík leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta 33-26. Þór Þ. opnaði annan leikhluta með þrist úr horninu frá Lazar Lugic og var það ákveðin fyrirboði yfir það hvað var í vændum. Bæði lið voru að hitta virkilega vel fyrir aftan þriggja stiga línuna og sáum við nítján slík detta í fyrri hálfleik. Þór Þ. náði að tengja saman góða vörn með flottri sókn og náði að snúa leiknum sér í hag fyrir hálfleik. Þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik var staðan 51-53 gestunum í vil. Þór Þ. byrjaði seinni hálfleikinn með viðeigandi þrist sem steinlá frá Rafail Lanaras. Það var mikill kraftur í gestunum sem voru með að því virtist öll völd á vellinum og öll stóru skotin voru að detta fyrir þá. Njarðvík fékk fjölmörg tækifæri til þess að koma sér í betri stöður en voru sjálfum sér verstir. Heimamenn voru að tapa boltanum full auðveldlega og gera klaufaleg mistök á ögurstundu. Flottur endasprettur hjá Njarðvík skilaði þeim þó bara þrem stigum frá gestunum fyrir fjórða leikhluta 70-73. Heimamenn mættu með krafti út í fjórða leikhluta og voru mun líkari liðinu sem maður sá í fyrsta leikhlutanum. Voru grimmir og áræðnir á körfuna snéru leiknum fljótlega sér í hag. Njarðvíkingar komust í tíu stiga forskot en þá tóku gestirnir við sér og leikurinn var orðin hnífjafn þegar rétt um mínúta var eftir. Jacoby Ross átti svakalegan þrist fyrir Þór Þ. alveg í blálokin sem kom gestunum yfir þegar það voru rétt um 15 sekúndur eftir. Njarðvík tók leikhlé og færðu boltann yfir á vallarhelming Þórs. Heimamenn fundu Dwayne Lautier-Ogunleye sem keyrði undir körfuna en klikkaði. Þór Þ. tók leikhlé og teiknaði upp lokasókn. Njarðvíkingar byrjuðu á því að brjóta og stálu svo boltanum þegar sekúndurnar voru að telja niður. Dwayne Lautier-Ogunleye fann þá Veigar Pál Alexandersson sem stökk upp í sniðskot sem geygaði og gestirnir frá Þorlákshöfn gátu fagnað sigri 92-93 í ótrúlegum endi. Atvik leiksins Auðvelt að nefna klikkið hjá Njarðvíkingum í lok leiks. Fengu tvö dauðafæri sem klikkuðu bæði. Þristurinn frá Jacoby Ross sem tryggði sigurinn var engu síðri. Hann var með mann í sér langt úti á velli en negldi skotið. Stjörnur og skúrkarDjordje Dzeletovic reyndist Njarðvíkingum erfiður í kvöld. Var að hitta hrikalega vel fyrir aftan þriggja stiga línuna og var stigahæstur í liði Þórs með 23 stig.Jacoby Ross fær líka sæti hérna fyrir að stíga upp í lokin og setja stóru skotin. Hann endaði með 17 stig og Rafail Lanaras var með 19.Hjá Njarðvík var það Dwayne Lautier-Ogunleye sem endaði stigahæstur á vellinum með 31 stig.DómararnirDómararnir heilt yfir voru bara nokkuð fínir. Ekki frábærir en ekkert hræðilegir heldur.Stemingin og umgjörðÞað verður seint tekið af Njarðvíkingum að þeir leggja svo sannarlega metnaðinn í starfið. Hefði viljað sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem lögðu leið sína í IceMar-höllina í kvöld.