Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. desember 2025 19:14 Sveitastjórnarkosningar fara fram þann 16. maí á næsta ári. Fimm mánuðir eru til stefnu og þau sem stefnir á oddvitaframboð eru farin að stíga fram. vísir/samsett Það stefnir í gríðarlega spennandi kosningar í Reykjavík að mati stjórnmálafræðings sem telur að Viðreisn gæti endað í lykilstöðu milli blokkanna til hægri og vinstri. Hann telur óvíst hvort harður oddvitaslagur innan Sjálfstæðisflokksins yrði flokknum til gagns.
Sveitastjórnarkosningar fara fram þann sextánda maí, eða eftir um fimm mánuði. Það stefnir í spennandi kosningar í Reykjavík og það verður í það minnsta kosti einhver endurnýjun í oddvitasætum. Nýr oddviti verður hið minnsta á lista hjá Viðreisn þar sem Þórdís Lóa Þórhallsdóttir ætlar ekki fram. Þeir Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra og Róbert Ragnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Grindavík, hafa þegar gefið kost á sér. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Björg Magnúsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona og aðstoðarkona borgarstjóra, einnig taka slaginn. Hildur Björnsdóttir er leiðtogi Sjálfstæðismanna í borgarstjórn og ætlar að gefa kost á sér. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra, útilokar ekki að hann blandi sér í slaginn.Vísir Staðan er þó einna mest spennandi innan Sjálfstæðisflokksins. Hildur Björnsdóttir, oddviti, mun gefa kost á sér og Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður flokksins, útilokar ekki að færa sig yfir í borgarmálin. Í nýlegri könnun Maskínu voru þau hnífjöfn þegar spurt var hvern fólk vildi sjá sem næsta borgarstjóra. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er fólk þó tvístígandi innan Valhallar um hvort heppilegt sé að fara í harða prófkjörsbaráttu í stað þess að einblína á kosningarnar. Ólafur Þ. Harðarson, segir ómögulegt að spá fyrir um hvort slíkt yrði flokknum til gagns. „Stundum hafa flokkar farið vel út úr því og sýnt lífsmark með hörðum slag en stundum hefur það ekki gefist vel. Aðalmálið fyrir Sjálfstæðisflokkinn er held ég að bjóða fram samhentan lista,“ segir Ólafur. Heiða Björg Hilmisdóttir, oddviti Samfylkingar og borgarstjóri, ætlar að gefa kost á sér en heyrst hefur það gæti stefnt í baráttu um oddvitasætið.Vísir/Vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir sækist eftir oddvitasæti Samfylkingar í prófkjöri en samkvæmt heimildum hefur fólk innan flokksins verið að leita til annarra um að fara gegn henni. Meðal annars hafi verið haft samband við Berg Ebba Benediktsson, grínista og rithöfund. Miðflokkurinn er ekki með borgarfulltrúa og enginn hefur tilkynnt um oddvitaframboð. Hlédís Maren Guðmundsdóttir þykir líkleg en hún hefur verið áberandi í umræðunni um málefni flokksins undanfarið. Nafn Frosta Logasonar, fjölmiðlamanns, hefur einnig verið nefnt en í samtali við fréttastofu segir hann framboð ekki á döfinni. Þá er enn óvíst hvernig fer með mögulegt sameiginlegt framboð á vinstri væng eða hvort flokkarnir bjóði fram undir eigin merkjum. Fylgi flokkanna í borgarstjórn samkvæmt síðustu könnun Maskínu sem var gerð í lok nóvember.vísir Samkvæmt nýlegri könnun Maskínu er meirihlutinn fallinn. Var með samanlegt fjörutíu og fjögur prósent atkvæða og staðan var svipuð í könnun Gallup. Þá eru Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Miðflokkur með svipað samanlagt fylgi. „Miðað við þessar kannanir er hvorki gamli meirihlutinn, né þessi mið-hægri meirihluti með meirihluta. Sá sem ræður þarna úrslitum, ef meirihlutamyndun yrði í samræmi við þessar blokkir er Viðreisn, sem var með fimm prósent síðast og er nú að mælast með níu til tólf prósent,“ segir Ólafur. „Ef myndin er eitthvað í líkingu við það sem þessar kannanir eru að teikna upp getum við búist við mjög spennandi kosningum og ekki síður spennandi meirihlutamyndun, eins og við höfum reyndar oft séð,“ segir Ólafur.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Sjá meira