Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. janúar 2026 07:51 Donald og Melania Trump mæta á viðburð í Mar-a-Lago á gamlárskvöld. Getty/Joe Raedle Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vera við „fullkomna“ heilsu og neitar að hann hafi sofnað á fundum. Segist forsetinn einfaldlega vera að loka augunum til að slaka á.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í frétt Wall Street Journal, sem ræddi við Trump um heilsu hans. Spurningar hafa vaknað um heilbrigði forsetans á síðustu vikum og mánuðum en hann er 79 ára gamall og elsti maðurinn til að sverja embættiseið vestanhafs. Samkvæmt umfjöllun WSJ fer umræða um heilsufar Trump verulega í taugarnar á forsetanum, sem segist við hestaheilsu. Meðal þess sem hefur vakið athygli er viðvarandi mar á handarbökum forsetans, sem hann eða aðstoðarmenn hans hafa freistað að hylja með farða. Marið var fyrst útskýrt með vísan til mikils fjölda handabanda en í samtalinu við WSJ sagðist Trump taka 325 mg af aspirín á dag, sem hefði þau áhrif að hann fengi marbletti við minnsta tilefni. Aspirín inniheldur asetýlsalisýlsýru eins og magnýl og er stundum ávísað af læknum til blóðþynningar en þá í mun minni skömmtum. Að sögn Trump hefur hann hins vegar tekið stóra skammta í um 25 ár og neitar að hætta því. „Þeir segja að aspirín sé gott til að þynna út blóðið og ég vil ekki þykkt blóð að renna um hjartað mitt,“ sagði hann við WSJ. Trump leiðrétti einnig sjálfan sig og sagðist hafa gengist undir sneiðmyndatöku fyrr á árinu en hann haðfi áður sagst hafa verið látinn fara í segulómun. Að sögn Sean Barbaella, sem er einn af læknum forsetans, var tilgangur sneiðmyndatökunnar að útiloka blóðrásartengd vandamál. Trump greindi einnig frá því í samtalinu við WSJ að honum hefði verið ráðlagt að nota þrýstingssokka eftir að hann greindist með bláæðabilun, sem er algeng hjá eldra fólki. Hann hefði þó ekki farið að þeim ráðum, þar sem honum líkuðu ekki sokkarnir. Þess í stað hafi hann dregið úr bólgum í fótunum með því að standa oftar upp. Frekari hreyfing væri honum þó ekki að skapi. „Mér líkar það bara ekki,“ sagði hann um reglulega hreyfingu. „ Að labba á hlaupabretti eða hlaupa á hlaupabretti í margar klukkustundir eins og sumir gera; það er ekki fyrir mig.“ Hvað varðaði hina meintu svefnhöfgi, þá lokaði hann stundum augunum til að slaka á. Þá næðu ljósmyndarar stundum myndum af honum þar sem hann virtist sofandi en væri einfaldlega að blikka augunum akkúrat þegar smellt væri af.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira