Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Jakob Bjarnar skrifar 12. janúar 2026 11:47 Ráðherraskiptin þýða nokkurt rót á aðstoðarmannahópnum, þar eru nokkrar hrókeringar. vísir/vilhelm Hreiðar Ingi Eðvarðsson verður Ragnari Þór Ingólfssyni félagsmálaráðherra til aðstoðar. Sigurjón Arnórsson og Ágúst Ólafur Ágústsson verða aðstoðarmenn Ingu Sæland en eins og kunnugt er skipti hún um ráðuneyti, fór úr félags og húsnæðismálaráðuneytinu og tók við mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Sigurjón, sem hefur fylgt Ingu eins og skugginn, fylgir henni úr félags- og húsnæðismálaráðuneytinu en Ágúst Ólafur var fyrir í ráðuneytinu en hann aðstoðaði Guðmund Inga Kristinsson sem sagði af sér ráðherradómi.Guðbjörg Ingunn fer í frí Þetta þýðir að Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, þá er hún var um skamma hríð mennta- og barnamálaráðherra, og fylgdi svo ráðuneytinu sem aðstoðarmaður Guðmundar Inga þegar hann tók við, er í lausu lofti. Guðbjörg Ingunn dregur sig í hlé eftir talsverðar sviptingar í ráðherraliðinu.stjórnarráðið Guðbjörg Ingunn segist ekki vita hvað taki nú við. „Ég hef ekki tekið ákvörðun um hvað ég fer að gera. Þetta hefur gerst allt svo hratt og ég ætla bara að byrja á smá fríi,“ segir hún í stuttu samtali við Vísi. Hreiðar Ingi heldur áfram í ráðuneytinu Síðustu ár hefur Guðbjörg, sem er eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar sem er nýr félagsmálaráðherra, starfað í Suðurmiðstöð Reykjavíkur sem íþrótta- og samskiptatengill og sem verkefnastjóri Velkominn í hverfið, sem hefur það að markmiði að styðja sérstaklega við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna. Hreiðar Ingi verður áfram í ráðuneytinu, nú til aðstoðar Ragnari Þór.stjórnarráðið Guðbjörg var ráðin í stöðu sérfræðings í mennta- og barnamálaráðuneytinu í byrjun árs, var svo ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu og þá Guðmundar Inga. Hreiðar Ingi Eðvarðsson verður aðstoðarmaður Ragnars Þórs. Hreiðar Ingi var áður aðstoðarmaður Ingu í ráðuneytinu. Hann er lögfræðingur að mennt og var áður framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins. Ragnar Þór er ekki búinn að taka ákvörðun um hver annar kemur þar að málum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Stjórnsýsla Rekstur hins opinbera Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira