Ajax fær son Zlatans að láni frá AC Milan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 15:03 Maximillian Ibrahimovic fagnar marki með AC Milan Futuro, varaliði félagsins, sem spilar í D-deildinni á Ítalíu. Getty/AC Milan Hollenska fótboltafélagið Ajax hefur staðfest að félagið hafi fengið son Zlatans Ibrahimović, Maximillian, að láni frá ítalska félaginu AC Milan.
Með þessum félagaskiptum fetar Maximillian í fótspor frægs föður síns, sem átti afar farsæl þrjú ár í Amsterdam þar sem hann vann meðal annars tvo meistaratitla. Hollenska liðið hefur einnig kauprétt á þessum nítján ára gamla framherja í lok tímabilsins og sagði að hann myndi skipta tíma sínum milli U23-liðs Ajax og aðalliðsins. Welcome to Ajax, Maximilian Ibrahimović 🇸🇪 pic.twitter.com/03mAp28qCs— AFC Ajax (@AFCAjax) January 14, 2026 Maximillian gekk til liðs við unglingaakademíu AC Milan árið 2022 og hefur síðustu sex mánuði spilað með varaliði þeirra, Milan Futuro, í ítölsku Serie D-deildinni. „Við erum mjög ánægð með komu Maximilians,“ sagði yfirmaður knattspyrnumála hjá Ajax, Marijn Beuker. „Hann er hæfileikaríkur framherji með gott staðsetningarskyn innan og í kringum vítateiginn og hann hefur sterka, markmiðadrifna afgreiðslu. Hann er fær í að rekja boltann og hefur umfram allt frábært sigurhugarfar og æfingaáhuga,“ sagði Beuker. Zlatan Ibrahimović kom til Ajax frá Malmö FF sumarið 2001 en hann var nokkrum mánuðum frá tvítugsafmæli sínu. Maximillian er nítján ára en verður tvítugur í september. Zlatan spilaði 110 leiki fyrir félagið í öllum keppnum og skoraði 48 mörk í 110 leikjum. Maximilian Ibrahimović follows in his father’s footsteps. 👣 ⚪🔴⚪The 19-year-old is joining Ajax from Milan — the same age Zlatan joined the Amsterdammers back in 2001.History repeats itself. 🎞️ pic.twitter.com/DaG4ewRfMd— 433 (@433) January 11, 2026
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira