Fékk 69 milljónir króna fyrir söluna Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 15. janúar 2026 11:35 Pétur Marteinsson býður fram krafta sína í oddvitasæti Samfylkingarinnar. Prófkjörið fer fram aðra helgi. Vísir/vilhelm Félag í eigu Péturs Marteinssonar sem býður sig fram sem oddviti í prófkjöri Samfylkingar fékk 69 milljónir króna fyrir sölu á hlut í lóð í Skerjafirði sem hann og viðskiptafélagar hans fyrirhuguðu að byggja íbúðir á fyrir tveimur árum. Hann segist hafa unnið að verkefninu í fimm ár en uppbygging hafi tafist vegna kerfislegra og pólitískra þátta. Það hafi því verið ákveðið að selja félagið sem heldur á lóðinni til annarra eigenda.
Reykjavíkurborg úthlutaði Pétri og tveimur öðrum viðskipafélögum lóð í Nýja Skerjafirði árið 2018 eftir að þeir sigruðu í hönnunarsamkeppni borgarinnar um hagkvæmt húsnæði undir nafninu HOOS 1 sem var í eigu félagsins Frambúðar sem er svo í eigu félaganna. Samkvæmt samningi við borgina er um að ræða fimm þúsund fermetra lóð með byggingarrétt fyrir allt að 140 íbúðir. Fjárfestingarfélagið Miðbæjareignir/Kjölur keypti hlut í HOOS 1 upp á 42 milljónir króna árið 2021 og svo aftur árið 2023 þegar það keypti restina af hlutafénu fyrir 189 milljónir. Pétur og félagar fengu því samtals 207 milljónir króna fyrir félagið HOOS 1. Í samtali við fréttastofu segir Pétur að eftir að hafa sigrað í hugmyndasamkeppni borgarinnar árið 2018 um hagkvæmt húsnæði hafi hann og félagar hans greitt 47,5 milljónir króna fyrir úthlutun lóðarinnar í Nýja Skerjafirði. Samkvæmt samningi við borgina á að greiða um 430 milljónir þegar lóðin er byggingarhæf, sem er enn ekki raunin. Stoltur af verkefninu Hann segist hafa unnið í tæp fimm ár að verkefninu og ráðið til sín arkitekta og verkfræðinga. Þeir félagar hafi hins vegar fljótlega lent í miklum töfum vegna kærumála og pólitískra afskipta. Þeir hafi því ákveðið að selja sinn hlut í HOOS 1 til annarra hluthafa sem vildu gera uppbygginuna að veruleika og fengu alls um 207 milljónir króna fyrir félagið. Hlutur hans hafi verið 69 milljónir, um helmingur hafi farið í launagreiðslur og restin í arðgreiðslu. Pétur segist ekki hafa neina hagsmuni af íbúðauppbyggingu á lóðinni og sé stoltur af verkefninu. Fréttastofa ræðir betur við Pétur Marteinsson í kvöldfréttum Sýnar. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg þarf ekki að leita samþykkis borgarráðs vegna breytinga sem kunna að verða á eignarhaldi félags sem hefur fengið úthlutaða lóð.
Samfylkingin Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Jarða- og lóðamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira