Taki ásökunum alvarlega og skipi Signýju til bráðabirgða Eiður Þór Árnason skrifar 15. janúar 2026 23:27 Signý Magnúsdóttir hefur áður starfað sem fjármálastjóri Sýnar en hún varð meðeigandi Deloitte á Íslandi árið 2014. Sýn Stjórnendur Deloitte á Íslandi segjast líta ásakanir á hendur Þorsteini Pétri Guðjónssyni, forstjóra fyrirtækisins, alvarlegum augum og hefur stjórn félagsins skipað Signýju Magnúsdóttur forstjóra til bráðabirgða.
Greint var frá því í dag að héraðssaksóknari hafi gefið út ákæru á hendur Þorsteini sem er sakaður um hafa brotið kynferðislega á ungri konu vorið 2023. Brotið getur varðað allt að tveggja ára fangelsi. Þorsteinn segir ásakanirnar eiga sér enga stoð í raunveruleikanum og að hann hafi kært brotaþola fyrir rangar sakargiftir. Hann gaf jafnframt út að hann muni stíga til hliðar sem forstjóri „á meðan þetta mál er til lykta leitt.“ „Við lítum þessar ásakanir mjög alvarlegum augum og höfum komist að samkomulagi við Þorstein Pétur um að hann stígi til hliðar. Við munum ekki tjá okkur frekar um málið á meðan það er til meðferðar hjá dómstólum,“ segir í yfirlýsingu Deloitte á Íslandi til fjölmiðla. „Við munum hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og hugsa vel um fólkið okkar.“ Hafi ekki stoppað fyrr en vinkona brotaþola reif í hann Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 20. janúar næstkomandi. Atvikið sem um ræðir átti sér stað á Hótel Rangá í maí árið 2023. Samkvæmt heimildum voru Þorsteinn og brotaþoli gestkomandi á hótelinu í sitt hvoru lagi og þekktust ekki. Í ákæru er honum gefið að sök að hafa kysst brotaþola gegn hennar vilja. Hann hafi skömmu síðar hlaupið að henni, ýtt henni upp við vegg og sett tunguna upp í munn hennar. Þá hafi hann sett höndina inn fyrir nærbuxur konunnar og káfað á kynfærum hennar innanklæða. Þá segir að ákærði hafi ekki látið af háttseminni fyrr en vinkona brotaþola kom að þeim, reif í jakka Þorsteins og öskraði á hann. Þorsteinn Pétur hefur verið forstjóri Deloitte frá árinu 2019 og er einn eigenda fyrirtækisins. Deloitte er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði endurskoðunar og ráðgjafar og í fyrra störfuðu þar hátt í fjögur hundruð manns. Þá hefur Deloitte meðal annars sinnt fjölda verkefna fyrir hönd íslenska ríkisins.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Lögreglumál Tengdar fréttir Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte, segir það hafa verið honum mikið áfall að ákært hafi verið vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. Ásakanirnar eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og hann hafi kært brotaþola fyrir rangar sakargiftir. Hann hefur þó stigið til hliðar sem forstjóri. 15. janúar 2026 15:47 Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Honum er gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Brotið getur varðað allt að tveggja ára fangelsi. 15. janúar 2026 14:18 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira
Forstjóri Deloitte: Sver af sér allar sakir en stígur til hliðar Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte, segir það hafa verið honum mikið áfall að ákært hafi verið vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. Ásakanirnar eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og hann hafi kært brotaþola fyrir rangar sakargiftir. Hann hefur þó stigið til hliðar sem forstjóri. 15. janúar 2026 15:47
Forstjóri Deloitte ákærður fyrir kynferðisbrot Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte á Íslandi, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot. Honum er gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Brotið getur varðað allt að tveggja ára fangelsi. 15. janúar 2026 14:18