Sjálfsmark endaði sigurgönguna og dramatík í Aserbaísjan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2026 19:46 Camilo Duran skoraði tvö fyrstu mörk Qarabag í leiknum og fagnar hér öðru þeirra. Getty/Aziz Karimov/ Sigurganga spænska liðsins Atletico Madrid í Meistaradeildinni endaði í kvöld en aserska liðið Qarabag vann á sama tíma dramatískan sigur.
Atletico Madrid komst yfir á útivelli á móti tyrkneska félaginu Galatasaray en fékk síðan á sig sjálfsmark sem tryggði heimamönnum stig. Atletico var búið að vinna þrjá Meistaradeildarleiki í röð og Giuliano Simeone, sonur þjálfarans, kom liðinu yfir með skalla á fjórðu mínútu. Marcos Llorente varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark á 20. mínútu og fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum. 1-1 var niðurstaðan. Það stefndi líka í jafntefli hjá Qarabag FK og Frankfurt í Aserbaísjan þar sem bæði lið höfðu komist yfir. Bahlul Mustafazade skoraði sigurmark Qarabag á fjórðu mínútu í uppbótartíma við gríðarlegan fögnuð. Frankfurt vann fyrsta leik sinn í keppninni en hefur síðan ekki tekist að vinna í sex leikjum í röð. Camilo Duran skoraði fyrstu tvö mörk heimamanna, kom Qarabag í 1-0 á 4. mínútu og jafnaði svo metin í 2-2 á 80. mínútu. Can Uzun jafnaði fyrir Frankfurt á 10. mínútu og Fares Chaibi kom þýska liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu á 78. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar voru Aserarnir búnir að jafna. Þeir voru ekki hættir heldur tryggðu sér dramatískan sigur með síðustu spyrnu leiksins. Sigurinn kemur Qarabag upp í sautjánda sæti.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira