Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2026 22:26 Harvey Barnes fagnar þriðja og síðasta marki Newcastle United á St. James´s Park í kvöld. Getty/Robbie Jay Barratt Fimm ensk félög eru í hópi átta efstu liðanna í Meistaradeildinni eftir að sjöundu umferðinni lauk í kvöld og aðeins ein umferð er eftir.
Newcastle er komið upp í sjöunda sætið eftir 3-0 heimasigur á PSV Eindhoven og Cheslea er í áttunda sætinu eftir 1-0 heimasigur á Pafos. Liverpool fór upp í fjórða sætið með 3-0 útisigri á Marseille og Tottenham er síðan í fimmta sætinu eftir sigur sinn á Dortmund í gær. Arsenal er síðan með fullt hús á toppnum. Yoane Wissa (8. mínúta), Anthony Gordon (30. mínúta) komu Newcastle í 2-0 í fyrri hálfleik og Harvey Barnes innsiglaði svo sigurinn með þriðja markinu á 65. mínútu. Liðið varð þó fyrir smá áfalli þegar Bruno Guimaraes meiddist undir lok fyrri hálfleiks. Skallamark Moisés Caicedo á 78. mínútu tryggði Chelsea nauman 1-0 sigur á kýpverska félaginu Pafos. Bayern München vann 2-0 sigur á belgíska félaginu Union St.Gilloise. Harry Kane skoraði mörkin á 52. og 55. mínútu en seinna markið var úr víti. Kane fékk tækifæri til að innsigla þrennuna á 81. mínútu en skaut þá í stöngina úr vítaspyrnu. Bæjarar voru manni færri frá 63. mínútu þegar Min-Jae Kim fékk sitt annað gula spjald. Bayern er í öðru sætinu, þremur stigum á eftir toppliði Arsenal. Khéphren Thuram-Ulien og Weston McKennie tryggðu Juventus 2-0 sigur á Benfica. Juve er í fimmtánda sætinu. Athletic Club Bilbao vann 3-2 útisigur á Atalanta á Ítalíu. Gorka Guruzeta, Nico Serrano og Robert Navarro skoruðu mörkin en Navarro átti einnig tvær stoðsendingar. Gianluca Scamacca og Nikola Krstovic skoruðu mörk ítalska liðsins. Athletic er í 23. sæti og í mikilli baráttu um að komast í útsláttarkeppnina en Atalanta er í þrettánda sæti.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira