Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. janúar 2026 16:32 Borat sundskýla þykir ekki viðeigandi klæðnaður á fótboltaleikjum í Kasakstan. Þrír stuðningsmenn belgíska liðsins Club Brugge hafa verið dæmdir í fimm daga fangelsi í Kasakstan fyrir að klæðast Borat sundskýlu í stúkunni gegn Kairat Almaty.
Club Brugge sótti mikilvægan 4-1 sigur gegn Kairat í Meistaradeildinni á þriðjudag og þó ferðalagið frá Belgíu til Kasakstan sé mjög langt, um sex þúsund kílómetrar, voru eitthvað um fimm hundruð stuðningsmenn Club Brugge mættir. Fimbulkuldi er í Kasakstan á þessum árstíma en stuðningsmennirnir létu það ekki stoppa sig og ákváðu að fara úr fötunum þegar Club Brugge skoraði þriðja mark leiksins. Þeir voru þó ekki alveg naktir því undir fötunum klæddust þeir svokallaðri Borat sundskýlu. Borat is van ons ole ole! pic.twitter.com/dbYegol1aK— 𝙁𝘾. 𝘽𝙧𝙪𝙜𝙚𝙨 𝘼𝙧𝙢𝙮 🏆 (@FcBrugesArmy) January 20, 2026 Sundskýlan nýtur frægðar úr kvikmyndinni Borat, þar sem Sacha Baron Cohen þykist vera blaðamaður frá Kasakstan. Kasakar hafa gagnrýnt myndina harðlega síðan hún kom út árið 2006 og þykir hún ekki lýsa þjóðina réttu ljósi. Úr kvikmyndinni Borat. Þessir þrír stuðningsmenn sáu ekki restina af leiknum því þeir voru strax dregnir úr stúkunni og handteknir af lögreglu. Þeir hafa nú verið dæmdir til fimm daga fangelsisvistar. „Þeir gerðu þetta bara til gamans, en lögreglan leit á þetta sem móðgun. Þeir verða í fangelsi fram á sunnudag. Þetta er mjög alvarlegt, en þeir gerðu ekkert af sér annað en að klæðast Borat búningi“ sagði vinur þeirra við Nieuwsblad í Belgíu. Þremenningarnir áttu að ferðast með vini sínum aftur til Belgíu á morgun, en nú eru ferðaplönin í uppnámi. „Ég veit ekkert hvernig þeir komast heim. Við erum búnir að hafa samband við belgíska sendiráðið en þeir geta ekkert hjálpað okkur.“
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira