Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Jón Þór Stefánsson skrifar 23. janúar 2026 14:46 Heiða Björg Hilmisdóttir svaraði fyrir meint skilaboð sín í Pallborðinu á Vísi. Vísir/Ívar Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og frambjóðandi í oddvitaslag Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboð þar sem hún hafi hvatt ótilgreinda manneskju til að skrá sig í Samfylkinguna til að taka þátt í prófkjöri flokksins. Í umræddum skilaboðum er vísað til Péturs Marteinssonar, mótframbjóðanda hennar, sem frægs karls með enga reynslu.
Þetta kom fram í Pallborðinu á Vísi í dag. „Sæl kæra […] nú er prófkjör í Samfylkingu á laugardaginn og það er óvenju opið og mikið verið að smala fólki til þátttöku,“ segir í skilaboðunum sem voru sýnd áhorfendum Pallborðsins. „Þetta kostar ekkert og ef fólki vil [sic] getur það skráð sig úr félaginu aftur eftir helgina. Mér finnst þetta mjög erfið barátta þar sem karl með enga reynslu en færægur [sic] á að koma í stað mín. Ég óttast um okkar mál og áherslur. Mig langar því að biðja um þinn stuðning og sendi þér hlekk á skráningu í von um að þú takir þátt. Hlý kveðja Heiða.“ Í Pallborðinu á Vísi í dag sagðist Heiða ekki muna eftir því að hafa sent skilaboðin, en útilokaði það þó ekki. „Ég nefnilega man ekki eftir að hafa sent þessi skilaboð, nei. En ég get náttúrulega ekki útilokað það. Ég er búin að senda nokkur skilaboð.“ Frægð Péturs, það að hann sé fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, finnst þér það hafa áhrif? „Ég held að Pétur hafi sjálfur sagt að hann er að koma nýr inn í þetta, með enga reynslu. Mér finnst skrýtið ef flokkurinn velur það umfram konu sem er með mikla reynslu og hefur sýnt að hún getur náð miklum árangri. En það er auðvitað flokksins að velja.“ Þá bað hún fólk um að taka myndum sem þessum með fyrirvara. Í Pallborðinu svaraði Pétur jafnframt fyrir skjáskot af skilaboðum sem einnig er í dreifingu á samfélagsmiðlum. Þar hvetur ótilgreindur einstaklingur þann sem fær skilaboðin til að taka þátt í prófkjörinu, og kjósa ákveðna frambjóðendur í efstu fimm sætin, en viðkomandi er beðinn um að setja Pétur í fyrsta sætið. Pétur sagði umrædd skilaboð ekki vera á sínum vegum. „Þetta er ekki frá mér komið. Alveg hundrað prósent. Ég hef alveg gefið það út að ég mun ekki gefa neina lista út.“´ Hér má sjá Pallborðið í heild sinni.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Samfélagsmiðlar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira