Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. janúar 2026 11:45 Patrick Dorgu fær aðhlynningu í leiknum gegn Arsenal. getty/Mike Egerton Patrick Dorgu, sem hefur skorað í síðustu tveimur leikjum Manchester United, er meiddur aftan í læri og verður frá í um tíu vikur.
Dorgu meiddist í 2-3 sigri United á Arsenal á Emirates á sunnudaginn. Dorgu skoraði annað mark Rauðu djöflanna með frábæru skoti fyrir utan teig sem fór í slána og inn. Meiðslin sem Dorgu varð fyrir í leiknum í fyrradag munu halda honum frá keppni í nokkurn tíma samkvæmt frétt The Athletic. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hversu löng fjarvera Dorgus verður en gert er ráð fyrir að hún verði um tíu vikur. 🚨 Bad news for #MUFC: Patrick Dorgu set to be out for around 10 weeks after scans reveal hamstring injury. Exact timelines still being assessed but more significant issue than cramp, as first hoped.w @greggevans40 @SebSB @mjcritchley ⬇️https://t.co/gW0RMisiDh— Laurie Whitwell (@lauriewhitwell) January 27, 2026 Dorgu hefur spilað á vinstri kantinum í báðum leikjum United undir stjórn Michaels Carrick. Hann skoraði annað mark liðsins í 2-0 sigrinum á Manchester City um þarsíðustu helgi og fylgdi því svo eftir með því að skora á Emirates á sunnudaginn. Danski landsliðsmaðurinn gæti misst af allt að átta leikjum með United sem er í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Hinn 21 árs Dorgu hefur leikið 22 af 23 leikjum United í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, skorað þrjú mörk og gefið þrjár stoðsendingar. Næsti leikur United er gegn Fulham á Old Trafford á sunnudaginn kemur.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn