Handbolti

Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur há­tíð fyrir Dag og hans menn

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Sigurðsson og hans menn geta fagnað vel eftir verðlaun á stórmóti annað árið í röð.
Dagur Sigurðsson og hans menn geta fagnað vel eftir verðlaun á stórmóti annað árið í röð. Getty/Sina Schuldt

Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í króatíska handboltalandsliðinu eru þjóðhetjur og þeim verður fagnað í dag eftir bronsverðlaunin á EM, rétt eins og eftir silfrið á HM fyrir ári síðan.

Stemningin fyrir handboltalandsliðinu er mikil í Króatíu og búist er við margmenni í miðborg Zagreb, á Ban Jelacic torginu þar sem athöfn hefst klukkan 18 að staðartíma.

Samkvæmt 24 Sata voru aðdáendur farnir að koma sér fyrir við sviðið fjórum klukkutímum áður en dagskráin átti að hefjast, og lögregla með fjölmenna sveit á svæðinu.

Tónlistarmaðurinn umdeildi Thompson, sem ekki mátti heyrast í fyrir leiki Króata í handboltahöllunum á EM vegna ásakana um að upphefja fasisma, mun stíga á stokk rétt eins og hann gerði fyrir ári síðan við svipað tilefni. Dagur sló í gegn við þau hátíðarhöld og er orðinn að þjóðhetju í Króatíu.

Króatar tryggðu sér bronsverðlaunin á EM með enn einum sigrinum á Íslandi, 34-33 í gær. Þrjú af fjórum töpum Íslands á síðustu tveimur stórmótum hafa komið gegn Króötunum hans Dags.

Fá 760.000 krónur á mann

Mikil ánægja er með árangurinn í Króatíu, ekki bara hjá almenningi heldur einnig ráðherrum ríkisstjórnarinnar.

Ráðherra íþrótta og ferðamála, Tonci Glavina, tók á móti króatíska EM-hópnum á flugvellinum í Zagreb í nótt. Þar kom fram, samkvæmt 24 Sata, að leikmenn og allir í starfsteymi króatíska liðsins fengju sérstakan bónus vegna árangursins. Þar er um að ræða 5.250 evrur á mann, eða um 760.000 krónur.

„Ég óska handboltamönnunum okkar til hamingju með þennan stórkostlega árangur. Þetta er enn einn sönnun þess að hér höfum við gullkynslóð sem þegar hefur skilið eftir djúp spor, og ég er viss um að mun halda áfram að ná frábærum árangri á komandi árum,“ sagði Glavina en EM-hópurinn var svo boðinn til forsætisráðherrans Andrej Plenkovic í hádeginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×