Vörn snúið í sókn í menntamálum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 3. febrúar 2026 14:33 Mikið hefur verið rætt um skólamál undanfarin ár, enda málaflokkurinn stór. Staða grunnskólanna er viðunandi og þar horfir margt til betri vegar. Á árum áður starfaði ég bæði sem kennari og sálfræðingur í grunnskólum og tel mig þekkja starfið innan þeirra ágætlega. Flestum börnum líður ljómandi vel í sínum skóla bæði varðandi námið og félagslega stöðu sína. Það skiptir miklu máli þegar rætt er um börn og grunnskólann að muna að öll börn eru sérstök. Þau eru jafn ólík og þau eru mörg. Þau þroskast misjafnlega og þarfir þeirra eru að sama skapi ólíkar. Þetta á jafnvel við innan sama árgangs og væntingar barna til skólans og námsins eru mismunandi. Félagslegi þátturinn er ekki síður mikilvægur en námið sjálft og ástundun þess. Barn sem er framúrskarandi í námi þrífst illa án vina og kunningja. Það er sorglega óviðunandi staða ef barn er einmana í skólanum sínum. Myndun tengsla við samnemendur og kennara skiptir sköpum fyrir líðan barnsins í skólanum. Það er okkar hlutverk sem stjórnvald að sýna metnað og róa að því öllum árum að tryggja börnum aðstæður sem koma til móts við fjölbreyttar þarfir þeirra í skólakerfinu. Lesskilningur grundvallaratriði Á síðustu árum hefur athyglinni verið beint að eflingu málþroska, læsis og lesskilnings í ljósi slakrar niðurstöðu íslenskra nemenda í PISA könnunum. Það er ljóst að einhvers staðar er pottur brotinn í „kerfinu.“ Finna þarf út hverju þarf að breyta til að tryggja að öll börn fái tækifæri til að nýta getu sína og færni til hins ítrasta. Þannig að þau útskrifist úr grunnskóla ekki aðeins læs heldur geti einnig lesið sér til gagns og gamans. Ef vísbendingar eru um að barn eigi í erfiðleikum á þessu sviði þarf að grípa strax inn í með viðeigandi aðstoð og úrræðum. Upplýsingar um vanda barns af þessu tagi liggja oft fyrir strax í leikskóla. Heilsugæslan skimar öll börn um fjögurra ára aldurinn, líkamlega, félags- og tilfinningalega og vitsmunaþroski er kannaður. Grunnskólinn hefur aðgang að þessum upplýsingum með samþykki foreldra. Það er því vel hægt að leggja drög að undirbúningi skólagöngu barna og taka tillit til þeirrar aðstoðar sem þau þyrftu á að halda fyrstu árin. Hafa þarf auga með hvort barn er jaðarsett eða verður fyrir einelti og grípa strax inn í ef grunur leikur á því. Það gefur augaleið að barn sem er illa statt félagslega í skóla sínum getur átt erfitt með að einbeita sér að náminu, hvað þá njóta þess. Ákveðin hópur barna í skólum landsins eru í þessum aðstæðum og það er óásættanleg staða. Matsferillinn Ný lög um breytingu á grunnskólanum hafa nýlega tekið gildi sem fela í sér miklar bragarbætur. Nýr matsferill breytir miklu. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem reglulega dregur upp heildstæða mynd af stöðu og framförum nemenda í gegnum alla skólagönguna. Niðurstöður reglulegra stafrænna prófa eftir bekkjum og árgöngum eru síðan birtar. Matsferli gefur nemendum, foreldrum og skólum meiri og betri upplýsingar varðandi stöðu og framvindu í námi. Þannig verður til greiður aðgangur að vönduðum mælingum. Niðurstöður mælinganna ættu að auðvelda skólum að fylgjast með hverjum nemanda fyrir sig. Þannig skapast tækifæri til að veita viðeigandi kennslu og stuðning. Þannig er hægt að greina áskoranir við stefnumótun og ráðast í nauðsynlegar umbætur. Það er von mín og trú að við séum að horfa til bjartari tíma fyrir börnin okkar á vettvangi skóla. Markmið barna- og menntamálaráðherra og okkar allra í Flokki fólksins er að öllum börnum geti liðið vel í skólanum hvort hann er kallaður skóli með eða án aðgreiningar. Hér duga engar skyndisóknir. Þetta þarf að vera skipulagt langhlaup sem við hlaupum sameiginlega til enda. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar