Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Samúel Karl Ólason skrifar 4. febrúar 2026 14:37 Trump virtist ekki sáttur við ítrekaðar spurningar um Epstein-skjölin svokölluðu á blaðamannafundi í gær. AP/Alex Brandon Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki nóg og kallaði hann „hinn versta fréttamann“ eftir að hún spurði hann út í Epstein-skjölin. Á blaðamannafundi í skrifstofu forsetans í gær sagði hann, áður en hann hellti sér yfir Kaitlan Collins frá CNN, að þjóðin þyrfti að snúa sér að öðru en Epstein-skjölunum.
Kaitlan Collins er æðsti fréttamaður CNN í Hvíta húsinu og hefur fjallað ítarlega um Trump frá 2016. Á fundinum í gær var Trump nokkrum sinnum spurður út í Epstein-skjölin. Collins spurði hann tvisvar sinnum út í skjölin og það að aðilar úr ríkisstjórn hans væru nefndir þar og hefðu umgengist Epstein. Þá spurði hún Trump út í fórnarlömb Epsteins og upplýsingar sem hefðu verið huldar af dómsmálaráðuneytinu í skjölunum. Kaitlan Collins í samkvæmi fyrir Grammy-verðlaunaathöfnina í lok janúar.AP/Chris Pizzello Síðan spurði hún út í það að mörgum fórnarlömbum Epsteins fyndist réttlætinu ekki hafa verið fullnægt. Þá brást Trump reiður við. „Hvað sagðir þú? Haltu áfram CNN, þú ert svo slæm. Þú ert hinn versti fréttamaður,“ sagði Trump og bætti við að áhorf á CNN væri mjög slæmt út af fólki eins og Collins. „Hún er ung kona,“ sagði Trump og beindi orðum sínum að öðrum í skrifstofunni. „Ég held ég hafi aldrei séð þig brosa. Ég hef þekkt þig í tíu ár. Ég held ég hafi aldrei séð bros á andlitinu þínu.“ Collins svaraði honum og benti á að hún væri að spyrja hann út í fórnarlömb Epsteins. „Veistu af hverju þú brosir ekki? Af því að þú veist að þú ert að segja ósatt.“ Trump sagði CNN óheiðarlegt fyrirtæki og að forsvarsmenn þess ættu að skammast sín fyrir hana. Sjá má spurningarnar í gær og samskipti Trumps við Collins í spilaranum hér að neðan. Í grein New York Times segir að þegar verið var að smala blaðamönnum út af skrifstofunni hafi Trump heyrst tala við öldungadeildarþingmanninn John Barrasso. „Hún brosir aldrei!“ sagði hann. Trump hefur áður orðið reiður út í Collins. Í desember kallaði Trump hana andstyggilega og heimska eftir að hún spurði hann út í kostnaðinn við veislusalinn sem Trump er að láta reisa við Hvíta húsið. Þá gagnrýndi hann einnig CNN og sagði fréttastofuna hræðilega og að áhorfið á sjónvarpsstöðina væri lítið sem ekki neitt. Forsetinn hefur ítrekað verið harðorður í garð fréttakvenna en eitt þekktasta dæmið er frá því nóvember þegar hann sagði: „Þegiðu svínka“ við fréttakonu um borð í forsetaflugvélinni. Þá var einnig verið að spyrja hann út í Jeffrey Epstein. When a reporter on Air Force One asked President Donald Trump a question about Epstein's recently revealed emails, Trump snapped at her, responding with the phrase “Quiet, piggy.” pic.twitter.com/qpiFOOTeiG— The Washington Post (@washingtonpost) November 18, 2025
Donald Trump Bandaríkin Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira