Leik lokið: Afturelding-Valur 27-35 | Arnór með súperleik í stórsigri í toppslag Kári Mímisson skrifar 8. febrúar 2026 17:00 Arnór Snær Óskarsson kom að tuttugu mörkum Valsmanna og klikkaði ekki á skoti. Vísir/Diego Valsmenn rifu sig upp eftir skellinn á móti Haukum fyrir þremur dögum og sóttu tvö stig í Mosfellsbæinn eftir sannfærandi átta marka sigur á Aftureldingu, 35-27, í toppslag í Olís-deild karla í handbolta. Tap Valsmanna á móti Haukum var það fyrsta í deildinni síðan um miðjan október (átta deildarsigrar í röð) en Hlíðarendapiltar sýndu á sér allt aðra hlið í kvöld. Arnór Snær Óskarsson fór hreinlega á kostum með Val, var búinn að koma að tíu mörkum í hálfleik (6 mörk og 4 stoðsendingar) og endaði með þrettán mörk úr þrettán skotum og sjö stoðsendingar. Stórkostleg frammistaða í toppslag. Björgvin Páll Gústavsson varði líka vel, þar á meðal tvö víti. Valsmenn voru bara einu marki yfir þegar níu mínútur voru til hálfleiks en unnu lokamínúturnar 7-2 og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 18-12. Valsliðið var eftir það með góð tök á leiknum og sigldi sannfærandi stórsigri heim. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Olís-deild karla Valur Afturelding