Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. febrúar 2026 07:24 Trump hefur enn og aftur haft í hótunum við Kanada. Getty/Al Drago Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það.
Til stendur að opna Gordie Howe International Bridge sem liggur á milli Detroit og Windsor í Ontario á næstu vikum eða mánuðum. Það liggur ekki fyrir hvernig Trump hyggst koma í veg fyrir að það gerist, þar sem Kanada greiddi fyrir framkvæmdina og á brúna með Michigan. Trump gæti gripið inn í með því að lýsa yfir neyðarástandi en lögum samkvæmt er landamærayfirvöldum heimilt að loka aðgengi inn í landið þegar þjóðaröryggi er í húfi. Forsetinn hefur áður gripið til þess að lýsa yfir neyðarástandi til að ná fram markmiðum sínum. Til viðbótar við að hafa í hótunum við stjórnvöld í Kanada, sem Trump hefur staðið í hálfgerðu stríði við frá því að hann tók aftur við embætti, gerði forsetinn því einnig skóna í gær að hann myndi mögulega freista þess að eignast helming í brúnni til að fá hluta af brúartollinum. Trump lofaði verkefnið í fyrri stjórnartíð sinni en það hefur andað köldu á milli Washington og Ottawa eftir að Trump hafði það í flimtingum að Kanada ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna og hóf tollastríð gegn hingað til traustum bandamanni og nágranna. Þá virðist það hafa farið verulega í taugarnar á honum lofið sem Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, fékk fyrir ræðu sína í Davos, þar sem hann talaði um nýja skipan heimsmála. Ræða Trump þótti hins vegar ekki merkileg smíði, þar sem forsetinn óð úr einu í annað í langan tíma, eins og hann á til. New York Times fjallar ítarlega um málið.
Bandaríkin Kanada Donald Trump Mest lesið „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira