„Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Lovísa Arnardóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 10. febrúar 2026 22:02 Jens Garðar er mótfallinn breytingunum og bendir á að hann sé ekki einn um það. Vísir/Vilhelm Þingflokksformaður Flokks fólksins segir málflutning Sjálfstæðismanna um breytingar á örorku- og ellilífeyrisbótum sorglegan. Breytingunum sé aðeins ætlað að stöðva kjaragliðnun sem hafi átt sér stað síðustu ár. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir aðferðarfræðina við breytingarnar galna.
Harðar deilur hafa staðið yfir á Alþingi um frumvarp sem bindur hækkanir örorku- og ellilífeyrisbóta við launavísitölu. Í dag eru bætur ákvarðaðar út frá launaþróun og byggist matið á kjarasamningsbundnum launahækkunum. Vísitalan tekur aftur á móti einnig til launaskriðs og hækkar hún almennt umfram hækkanir á bótagreiðslum. Viðbúið er að bætur muni því hækka en aðgerðin er hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og miðar að því að draga úr kjaragliðnun. Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Axel Hall gagnrýna frumvarpið harðlega í grein sem hefur verið til umræðu á Alþingi og benda meðal annars á að bætur gætu nú hækkað umfram laun hinna tekjulægstu, sem geti dregið úr atvinnuþátttöku. „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin,“ segir Jens Garðar Helgason, varaformaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann bendir á að Samtök atvinnulífsins og verkalýðsfélögin hafi varað við þessum breytingum, helstu hagfræðingar landsins, fjármálaráð og fjármálaráðuneytið. „Vara við því að þetta séu hagstjórnarleg mistök,“ segir Jens Garðar en rætt var við hann í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Hann segir breytinguna geta leitt til þess að þátttaka á vinnumarkaði geti minnkað og auk þess sé þetta verðbólguaukandi. „… og ég held við séum búin að fá nóg af verðbólguskotum og sendingum frá ríkisstjórninni. Og síðan ofan á allt mun þetta skerða lífeyrisgreiðslur lífeyrisþega úr lífeyrissjóðunum,“ segir hann. Hrossakaup Hann segir þetta „óuppfylltan tjékka“ sem sé verið að senda inn í framtíðina og að afleiðingarnar geti orðið stórkostlegar. „Það er enginn að tala um að þeir vilji ekki bæta kjör þeirra lægst launuðu en það er algjörlega á hreinu að þessi aðferðarfræði, að tengja bætur við launavísitölu ofan á verðbólguna, er galin aðferðafræði og þetta eru í rauninni bara hrossakaup til að halda ráðherrabekknum saman,“ segir hann. Breytingar sem eigi að stöðva kjaragliðnun Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksis, segir málflutning stjórnarandstöðunnar og hafræðinganna Gylfa Zoega og Axels Hall „sorglegan“ í þessu máli. „Þetta kemur alltaf þegar á að bæta kjör þeirra sem verst standa, þá koma allar dómsdagsspár fram.“ Hún segir að breytingarnar eigi að stöðva kjaragliðnum sem hafi átt sér stað síðustu ár á milli bótaþega almannatrygginga og lægstu launa. Munurinn sé 106 þúsund krónur núna. „Við erum ekki að fara að bæta þetta upp, við erum að fara að stöðva þetta. Það er það eina sem er að fara að gerast,“ segir Ásthildur Lóa. Ásthildur Lóa segir málflutning Sjálfstæðismanna sorglegan. Vísir/Lýður Valberg Hún blæs sömuleiðis á þau rök að breytingarnar stöðvi eða minnki hvata fyrir aldraða og öryrkja að fara á vinnumarkað. Fólk ráði því ekki hvenær það verði aldrað og það verði enginn öryrki að gamni sínu. „Þú læsir þig í fátæktargildru. Þú getur farið á lægstu laun og unnið þig upp en þú gerir það ekki sem öryrki,“ segir hún og að þau séu oft ekki í stöðu til að vera í hlutastarfi. „Þetta er ekki að fara að gera neitt annað en að stöðva þessa kjaragliðnun og að Sjálfstæðisflokkurinn skuli berjast gegn því af svo miklu afli að það sé gert það finnst mér bara sorglegt.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Fjármál heimilisins Kjaramál Sjálfstæðisflokkurinn Flokkur fólksins Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira