Dagur gaf vel í eftir rólega byrjun Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. febrúar 2026 11:58 Dagur Benediktsson var tæplega fjórum mínútum á eftir sigurvegaranum Johannes Klæbo. Tom Weller/Getty Images Dagur Benediktsson lauk 10 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á 24 mínútum og 18,1 sekúndu og var í 69. sæti. Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullið eftir mikla samkeppni.
Dagur byrjaði rólega og datt niður í 81. sæti eftir fyrsta hringinn, en bætti jafnt og þétt í hraðann og vann sig upp listann. Hann var í 70. sætinu þegar hann kom í mark á tímanum 24:18,1 en einn keppandi var dæmdur úr leik og Dagur stökk upp í 69. sætið. Þetta var þriðja keppni Dags en hann náði bestum árangri í 20 kílómetra skiptigöngu, 66. sæti, og hafnaði síðan í 79. sæti í sprettgöngunni. Dagur keppir sína fjórðu og síðustu keppni á Vetrarólympíuleikunum laugardaginn 21. febrúar, þegar 50 kílómetra keppni í hefðbundinni skíðagöngu fer fram. Klæbo vann áttundu gullverðlaunin Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullverðlaun eftir mikla baráttu við samlanda sinn Einar Hedegart og hinn franska Mathis Desloges. Hedegart leiddi keppnina og var lengi með besta tímann en enn og aftur átti Klæbo hreint ótrúlegan endasprett til að tryggja sér gullið í 10 kílómetra göngunni. Hedegart náði ekki að halda í við hann og féll niður í þriðja sæti en Mathis Desloges fékk silfur. Með þessum gullverðlaunum jafnaði Johannes Klæbo samlanda sinn Björn Dæhle sem sigursælasti skíðagöngukappi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum. Þeir hafa báðir unnið átta gullverðlaun í skíðagöngum en Klæbo getur unnið sín níundu gullverðlaun laugardaginn 21. febrúar þegar 50 kílómetra keppnin fer fram.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Sjá meira