Tölvuárás á Grund: Komust í gögn um tugi þúsunda skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda Agnar Már Másson skrifar 14. febrúar 2026 21:04 Tölvuárás var gerð á Grund í desember 2025. Netþrjótar komust í upplýsingar um tugi þúsunda fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda á Grundarheimilum þegar þeir réðust á netþjóna hjúkrunarheimilanna í desember. Interpol og Europol koma að rannsókn málsins ásamt lögreglu.
Frá því var greint í byrjun desember að óprúttnum aðilum hafi tekist að gera tölvuárás á netþjóna Grundarheimila og þeim tekist að afrita viðkvæmar persónuupplýsingar um skjólstæðinga áður en árásin uppgötvaðist. Meðal þeirra gagna voru upplýsingar um heilsufar og gögn sem tengjast umönnun og veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum. „Allt í það heila tekið“ Karl Óttar Einarsson segir í samtali við Vísi að hakkararnir hafi komist yfir gögn sem nái mörg ár aftur í tímann og varði tugi þúsunda manna. Rúv greindi fyrst frá. „Þetta er allt í það heila tekið; núverandi og fyrrverandi heimilismenn, núverandi og fyrrverandi starfsmenn, núverandi og fyrrverandi aðstandendur. Og bæði eru þetta þá látnir einstaklingar og lifandi,“ segir Karl Óttar í samtali við Vísi. Hann tekur þó fram að hakkararnir hafi aðeins gert afrit af gögnunum og þeim virðist ekki hafa tekist að taka þau í gíslingu. Þannig hafi Grund enn aðgang að öllum þessum gögnum. Auk þess segir Karl að engar fjárkröfur hafi borist Grund vegna gagnanna og tölvuþrjótarnir hafi ekki hótað hjúkrunarheimilunum með birtingu upplýsinga. Interpol rannsakar málið Enn liggur ekki fyrir hver gerði tölvuárásina. Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, segir að alþjóðalögreglan Interpol og Evrópulögreglan Europol rannsaki einnig málið. Slíkt sé yfirleitt gert í málum sem þessum, þegar erlendir glæpahópar liggja undir grun. Anton segir að engin merki séu um að gögnin séu komin í dreifingu. Syndis vakti huldunetið svokallaða til að kanna hvort einhver birti gögnin, sem hafi ekki gerst enn. Þá hefur enginn lýst yfir ábyrgð á árásinni, en Anton telur það líklega vegna þess hve fljótlega gekk að stöðva hana. Mögulega hafi hópurinn litið svo á að árásin hafi ekki verið nógu „spennandi“ eða árangursrík til að stæra sig af, þar sem ekki tókst að taka kerfin í gíslingu. Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis.Bylgjan
Hjúkrunarheimili Tölvuárásir Netöryggi Mest lesið WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Erlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Innlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent Fleiri fréttir Tölvuárás á Grund: Komust í gögn um tugi þúsunda skjólstæðinga, starfsmanna og aðstandenda Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Uppnám á bráðamóttökunni og seinagangur í Grindavík Fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás í Grafarvogi WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Safnstjórinn segir þessa flugvél merkasta gripinn Herþotur frá Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi á Íslandi Tveir handteknir fyrir stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Sjá meira