Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Sindri Sverrisson skrifar 14. febrúar 2026 21:52 Andrea Cambiaso skoraði fyrir bæði lið í kvöld. Getty Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Cambiaso var afar áberandi í stórleik Inter og Juventus í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. Inter vann leikinn, 3-2, og stefnir hraðbyri að titlinum.
Pólverjinn Piotr Zielinski reyndist hetja Inter en hann skoraði sigurmarkið á 90. mínútu í bráðfjörugum leik þar sem rautt spjald á Pierre Kalulu, varnarmann Juventus, hafði mikið að segja. Kalulu var rekinn af velli með sitt annað gula spjald á 42. mínútu, í stöðunni 1-1. Í sjónvarpi mátti þó sjá að hann virtist ekkert snerta Alessandro Bastoni, þegar seinna gula spjaldið fór á loft, en VAR gat ekkert aðhafst þar sem ekki var um beint rautt spjald að ræða. Mörkin tvö sem þarna höfðu verið skoruð í leiknum komu bæði frá Cambiaso, sem fyrst skoraði sjálfsmark og kom Inter yfir en jafnaði svo sjálfur metin á 26. mínútu. Í seinni hálfleiknum kom Francesco Pio Esposito Inter yfir á nýjan leik, þegar korter var eftir, en Manuel Locatelli jafnaði metin á 83. mínútu. Þá var þó enn tími fyrir toppliðið til að tryggja sér stigin þrjú. Þetta þýðir að Inter er með 61 stig eftir 25 leiki og nú átta stiga forskot á AC Milan á toppnum en AC Milan á þó leik til góða. Juventus er í 4. sæti með 46 stig.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira