Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Agnar Már Másson skrifar 16. febrúar 2026 00:16 Frá Pingtong, þar sem gömul kjarnorkurannsóknarstöð hefur fengið andlitsuppliftingu. GoogleMaps Djúpt inni í fjallagörðum Sesúan-dals í vesturhluta Kína, langt frá helstu byggðakjörnum, hafa nokkur gömul kjarnorkumannvirki á síðustu árum fengið endurnýjun lífdaga í nánast algjörri leynd. Loftmyndir af leynilegum kjarnorkustöðvum varpa ljósi á það hvernig stjórnvöld í Peking hafa reynt að stækka vopnabúr sitt.
Bandaríska stórblaðið New York Times greinir frá því að á loftmyndum sem teknar eru úr geimnum megi sjá hvernig ný kjarnorkumannvirki og neðanjarðarbyrgi hafa dúkkað upp á nokkrum svæðum í Sesúan-héraði síðustu ár. NYT hefur eftir sérfræðingum að uppbyggingin sem sést á loftmyndunum sé í samræmi við áætlanir stjórnvalda í Peking um að nútímavæða og stækka kjarnorkuvopnabúr sitt. Dagblaðið bendir á tvær starfstöðvar sem hafa verið endurnýjaðar á síðustu árum en þær nefnast Zitong og Pingtong og eru báðar faldar djúpt inni í fjallagörðum Sesúandals. Stöðin í Pingtong hefur fengið allsherjar andlitsuppliftingu á síðustu árum. Upp úr mannvirkinu rís rúmlega hundrað metra hár reykháfur.Skjáskot/GoogleMaps Slagorð Xi skrifuð í stóru letri Í sýslunni Zitong virðast verkfræðingar hafa byggt upp nýja varnarveggi og neðanjarðarvirki. Umfangsmikið pípukerfi sem umlykur mannvirkið virðist einnig benda til þess að þar sé unnið með hættuleg efni. NYT hefur eftir eðlisfræðingnum Hui Zhang, sem hefur rannsakað kjarnorkuverkefni Kínverja, að Zitong-stöðin gæti líklega tengst sprengitilraunum. Pingtong er aftur á móti í dalnum Sangsjújúan norður af borginni Minyang í sýslunni Pingvú. Stæðið hefur einnig fengið nýlega andlitsuppliftingu en NYT hefur eftir ónefndum sérfræðingum að talið sé að stöðin sé notuð til þess að búa til plútóníumkjarna fyrir kjarnorkusprengjur. Upp úr stærsta mannvirkinu á Pingtong-stöðinni rís rúmlega hundrað metra hár reykháfur en húsið virðist einnig hafa verið endurnýjað nýlega auk þess sem framkvæmdir standa yfir í kringum húsið. Hér að neðan má sjá kort af Pingtong-stöðinni og svæðinu þar um kring. Enn fremur, að því er NYT greinir frá, virðast einkennisorð Xi Jinping hafa verð skrifuð framan á húsið í svo stóru letri að þau sjást frá geimnum: „Gleymum aldrei upphaflegri ætlun okkar og höfum markmið okkar ávalt í huga.“ Blaðið segir að þetta séu aðeins tvær af fjölmörgum kjarnorkustöðvum í Sesúan sem hafi verið endurnýjuð í laumi á síðustu árum Gömul saga og ný Það er alls engin tilviljun að Sesúan-hérað sé miðstöð kjarnorkurannsókna í Kína, en þegar samband Kína við Sovétríkin og Bandaríkin stirðnaði á sjöunda áratugnum óttaðist ríkisstjórn Maós Zedong innrás frá Bandaríkjunum eða Sovétríkjunum, og hóf leyniverkefni sem kallað var „Þriðja víglínan“. Þar sem héraðið er umlukið fjallgörðum, þar á meðal Himalajafjöllum, þótti Sesúan góður staður til að ráðast í þetta verkefni þar sem fjöllin áttu að virka sem eins konar varnarveggur. Sjá einnig: Kína Síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku þar sem ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta vildi ekki framlengja hann. Samningurinn, sem nefndist New Start, fól í sér að Bandaríkjamenn og Rússar mættu ekki eiga fleiri virk kjarnorkuvopn en um það bil 1.550. Kínverjar áttu ríflega 600 kjarnorkusprengjur í lok árs 2024, að sögn NYT, en varnamálayfirvöld í Bandaríkjunum telja að þær gætu orðið allt að þúsund talsins árið 2030. Bandaríkjamenn vilja nýjan díl Bandaríkjamenn hafa sagt að nýtt samkomulag þurfi einnig að eiga við um Kínverja, sem séu að fjölga kjarnorkuvopnum sínum verulega þessa dagana, þó þau séu enn mun færri en vopn Bandaríkjanna og Rússlands. Í vikunni ásökuðu Bandaríkjamenn Kínverja um að hafa ráðist í tilraunir með kjarnorkuvopn, en Kínverjar neituðu sök. Renny Babiarz er sérfræðingur í málum er varða kjarnorkuuppbyggingu Kínverja, en hann segir við NYT að Kínverjar hafi gefið í að endurnýja kjarnorkustöðvarnar í kringum 2019. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans skoða nú hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum.
Kjarnorka Kjarnorkuvopn Bandaríkin Suður-Kínahaf Rússland Öryggis- og varnarmál Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira