Typpið í lagi en skórnir of stórir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 07:33 Daniel Tschofenig fékk ekki að keppa í úrslitum í skíðastökki á Vetrarólympíuleikunum í Mílano og Cortina vegn þess að skórnir hans voru of stórir. Getty/ Tom Weller Skíðastökkvari var útilokaður frá úrslitum á Vetrarólympíuleikunum í Mílano og Cortina vegna of stórra skóa aðeins nokkrum dögum eftir að „typpamálið“ skók leikana.
Austurríski skíðastökkvarinn Daniel Tschofenig fékk ekki að keppa í úrslitum á Vetrarólympíuleikunum vegna þess að skórnir hans voru fjórum millimetrum of stórir. Tschofenig, 23 ára, hafði komist í úrslitin á laugardag en lýsti yfir vonbrigðum með sjálfan sig þegar hann var í raun dæmdur úr leik vegna mistaka. „Ég notaði nýja skó á æfingu,“ sagði hann við austurríska ríkisútvarpið ORF. „Ég var ekki alveg ánægður með þá en hélt þeim samt. Því miður var ég barnalegur og athugaði ekki stærðirnar. Það var ótrúlega heimskulegt af mér,“ sagði Daniel Tschofenig. Daily Mail segir frá. Þótti líklegur Austurríkismaðurinn vann heimsbikarinn á síðasta ári og var einn af þeim sem þóttu líklegastir til að ná árangri um helgina þar til búnaður hans var skoðaður skömmu eftir fyrsta stökkið. Ski jumper disqualified from Winter Olympics because his shoes were too big despite making finalhttps://t.co/ErjiAKKU3g— GB News (@GBNEWS) February 15, 2026 Eftir að hafa fengið 137,7 stig virtist hann hafa komist í úrslitin en fljótlega varð ljóst að svo yrði ekki. Þessi 23 ára gamli keppandi var dæmdur úr leik þegar búnaður hans var skoðaður á eftir Atvikið átti sér stað aðeins nokkrum dögum eftir að nýjar aðgerðir til að taka á meintu typpastækkunarhneyksli sem hefur yfirtekið leikana komu í ljós, þar á meðal nýjar þrívíddarskannanir á kynfærasvæði íþróttamanna. „Typpamálið“, tók yfir leikana Málið, sem er þekkt sem „typpamálið“, tók yfir leikana í Mílanó-Cortina á furðulegan hátt, með óstaðfestum fullyrðingum um að karlkyns skíðastökkvarar hafi gripið til þess að sprauta hýalúrónsýru í kynfæri sín til að ná samkeppnisforskoti. Fyrir þetta tímabil og Ólympíuleikana var skíðamönnum gert að láta mæla líkama sinn með þrívíddarskanna. Þegar íþróttamenn gangast undir skönnunina verða þeir aðeins að vera í „þröngum nærfötum“, þar sem klofahæð þeirra er einnig mæld til að ákvarða stærð keppnisbúningsins til að tryggja að búningarnir hafi aðeins tveggja til fjögurra sentímetra vikmörk. Því stærri bungan, því lengra fljúga þeir Þetta er til að koma í veg fyrir að íþróttamenn eigi við búninga sína til að ná forskoti. Vísindarannsóknir benda til þess að hvers kyns aukning á yfirborði skíðabúnings geti í raun breytt stökkvaranum í mannlegan svifdreka. Því stærri bungan, því lengra fljúga þeir. Rannsókn í tímaritinu Frontiers leiddi í ljós að hverjir tveir sentímetrar í ummáli búnings minnkuðu loftmótstöðu um fjögur prósent og juku lyftikraft um fimm prósent – sem jafngildir 5,8 metrum til viðbótar í stökklengd. Hýalúrónsýra, þegar henni er sprautað í karlkyns lim, getur aukið ummál typpisins um einn til tvo sentímetra. Notkunin myndi leyfa karlkyns skíðastökkvurum að klæðast stærri búningum, sem myndi bæta loftaflfræðilega eiginleika þeirra. Nýju aðgerðirnar sem Alþjóðaskíðasambandið (FIS) kynnti fyrir leikana til að taka á meintu vandamáli fela í sér örmerki sem ekki er hægt að eiga við og keppendur verða að fara í gegnum eftirlitsstöðvar áður en þeir keppa. Daniel Tschofenig a vu ses Jeux olympiques 2026 s'arrêter pour un surplus de 4 millimètres sur ses chaussures ce samedi, lors de la première manche du concours sur grand tremplin.https://t.co/rG7uHQgoVA— RMC Sport (@RMCsport) February 14, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Fleiri fréttir Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía | Hvað gera strákarnir hans Zidane? Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sjá meira