„Ég er ekki kærastan“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 08:00 Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi hafa það á hreinu að hún væri ekki kærastan sem Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá. GettyAlexander Hassenstein/@chlolevins Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá.
Norðmaðurinn vakti heimsathygli fyrir að játa opinberlega framhjáhald með kærustu sinni í beinni útsendingu eftir að hafa unnið bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum. Óvænta játningin vakti forvitni á netinu og margir fóru að leita að konunni sem sögð er tengjast málinu. Stærstu mistök lífs míns Tilfinningaþrungið viðtal Sturlu fór líklega ekki fram hjá mörgum. „Fyrir sex mánuðum kynntist ég ástinni í lífi mínu, fallegustu og góðhjörtuðustu manneskju í heimi. Fyrir þremur mánuðum gerði ég stærstu mistök lífs míns og hélt fram hjá henni. Ég sagði henni frá því fyrir viku. Þetta hefur verið versta vika lífs míns.“ Að sjálfsögðu var mikil forvitni um hver þessi kærasta er og fólk var spennt að heyra hennar hlið á málinu. En þegar aðdáendur leituðu að fyrrverandi kærustunni sem hann vísaði til, fór eitt nafn á flug, nafn Chloe Levins. View this post on Instagram A post shared by chloe levins (@chlolevins) Chloe Levins er bandarísk skíðaskotfimikona og er einnig fyrrverandi kærasta Lægreid. Þessi 27 ára gamla kona er tvöfaldur Bandaríkjameistari og hefur keppt á fjórum heimsmeistaramótum fullorðinna (2021, 2023, 2024 og 2025). Hún keppir nú í heimsbikarnum í skíðaskotfimi og er talin sterkur keppandi fyrir Vetrarólympíuleikana í Mílanó-Cortina 2026. Fyrir utan skíðaskotfimi er hún einnig afrekskylfingur. Þessi umræða og orðrómur fór ekkert fram hjá Levins og var á endanum orðinn svo sterkur og þráðlátur að hún ákvað að stíga fram og segja sannleikann. Ég fæ margar spurningar „Nafn mitt hefur verið nefnt, myndir af mér hafa verið notaðar og ég fæ margar spurningar um norska skíðaskotfimimanninn sem minntist á fyrrverandi kærustu sína á Ólympíuleikunum,“ byrjaði Chloe Levins. „Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki fyrrverandi kærastan sem Sturla er að vísa til. Við áttum í stuttu sambandi og við slitum því fyrir tæpum fimm árum,“ sagði Levins. „Það eina sem ég vil segja um þetta mál er að ég óska Johan-Olav Botn til hamingju með sigurinn í einstaklingskeppni karla. Það var bæði áhrifamikið og hjartnæmt að sjá hann kalla nafn látins liðsfélaga síns, Sivert Guttorm Bakken, þegar hann fór yfir marklínuna og hugur minn er hjá Sivert og vinum hans og fjölskyldu,“ sagði Levins. Bætti við tveimur verðlaunum eftir viðtalið Sturla hefur síðan unnið tvenn verðlaun til viðbótar. Hann vann sín þriðju verðlaun á mótinu þegar hann lenti í öðru sæti í 12,5 km skíðaskotfimi karla á eftir gullverðlaunahafanum Martin Ponsiluoma frá Svíþjóð. Önnur verðlaun hans voru bronsverðlaun í 10 kílómetra sprettgöngu karla. Hann hefur hingað til neitað að nafngreina þá manneskju sem hann ræddi um í viðtalinu, þó að hann hafi greint frá því að hann hafi sagt henni frá framhjáhaldinu áður en hann hóf keppni í Mílanó. Biathlon balances the explosive speed of cross-country skiing and the stillness required to shoot targets the size of a golf ball. Team USA’s Chloe Levins and Deedra Irwin break down Olympic biathlon pic.twitter.com/vhTUFdRxRh— Reuters Sports (@ReutersSports) February 13, 2026
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Tengdar fréttir Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. 12. febrúar 2026 09:30 Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid er líklega umtalaðasti bronsverðlaunahafi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum en hann hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum eftir keppnina í gær þegar hann rændi sviðsljósinu af gull- og silfurverðlaunahafanum og gerði framhjáhald og sambandsslit sín að heimsfrétt. 11. febrúar 2026 11:31 Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59 Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02 Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Íslenski boltinn „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Raheem Sterling játar sök Enski boltinn Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fleiri fréttir Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök Ætla að segja KR-ingum að halda kjafti „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fúll yfir tapi London: HM í frjálsum fer í fyrsta sinn til Afríku Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan Mahomes snéri aftur með látum „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Losa Leonard eftir refsinguna „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Stefnir í spennandi toppbaráttu Íslendinganna Enn með fullt hús og spilað 46 leiki án taps Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sjá meira
Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. 12. febrúar 2026 09:30
Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid er líklega umtalaðasti bronsverðlaunahafi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum en hann hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum eftir keppnina í gær þegar hann rændi sviðsljósinu af gull- og silfurverðlaunahafanum og gerði framhjáhald og sambandsslit sín að heimsfrétt. 11. febrúar 2026 11:31
Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. 11. febrúar 2026 07:59
Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. 11. febrúar 2026 07:02