Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. febrúar 2026 08:00 Atle Lie McGrath strunsar hér út í skóg en vonbrigði hans að klúðra gullverðlaunum voru gríðarleg. EPA/ANNA SZILAGYI Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath var með forystu í svigkeppni Ólympíuleikanna en keyrði út úr brautinni og klúðraði gullinu. Það voru þó ekki mistökin heldur viðbrögðin við þeim sem vöktu heimsathygli. McGrath fór algjörlega yfir um, henti skíðastöfunum og öllu lauslegu af sér og strunsaði út í skóg.
McGrath hefur nú sagt sína hlið á því sem margir hneyksluðust á. Svissneskur þjálfari kunni vel að meta þessi mistök og fagnaði taumlaust rétt fyrir framan McGrath sem var nýbúinn að gera mistökin en þau þýddu að gullverðlaunin fóru til Sviss. Það var það fyrsta sem hann sá „Það var það fyrsta sem ég sá. Ég þarf ekkert að tjá mig um það. Það er augljóst hvað mér finnst um það,“ sagði McGrath við norska ríkisútvarpið á hótelinu síðar um kvöldið. Var það sérstaklega pirrandi fyrir hann? „Nei, það er lítill dropi í hafsjó sem er miklu stærri. Þetta hafa verið geðveikt erfiðir dagar fyrir mig utan íþróttanna, og að fá svo erfiðasta daginn í lífi mínu í íþróttinni,“ sagði Norðmaðurinn. Svissneski þjálfarinn fagnar hér eftir mistök Atle Lie McGrath sem gjörsamlega snappaði í framhaldinu.EPA/ANNA SZILAGYI Hann segir að þegar illa gengur í brekkunni hugsi hann um að þeir sem eru í kringum hann séu heilir heilsu og hafi það gott. Missti afa sinn á sama degi og leikarnir voru settir „En það hefur ekki verið raunin heldur. Þegar það verður svo erfitt á heimaslóðum og svo erfitt í brekkunni, þá verður þetta mikið,“ sagði McGrath. McGrath missti afa sinn sama dag og Ólympíuleikarnir voru settir. Hann segir að tilfinningarnar hafi tekið yfir og að hann hafi viljað vera einn eftir keppnina. Ljósmyndarar náðu að finna mig líka þar „En þar voru ljósmyndarar sem náðu að finna mig líka, svo ég fékk engan tíma ein. Þetta eru bara tilfinningar sem koma út á líkamlegan hátt. Atle Lie McGrath brást þegar mest á reið og stakk því bara af til skógar á eftir. „Ég hef eytt nægum tíma í skóginum svo nú vil ég vera með fólki sem ég elska. Það er allt sem ég þarf. Ég held ég þurfi ansi mikinn tíma til að vinna úr þessu. Þetta verður mjög erfitt,“ sagði McGrath. Aðspurður hversu tilfinningaþrunginn dagurinn hafi verið svarar McGrath: Síðustu tvær vikur hryllilegar „Gífurlega. Það er ekki bara dagurinn í dag. Síðustu tvær vikur hafa verið alveg hryllilegar,“ sagði McGrath. Þjálfari Noregs, Michael Rottensteiner, var afar óánægður með viðbrögð þjálfara Sviss. Hann sagði við TV2 að hann hefði farið beint til þjálfarans og látið hann heyra það. „Ég tók þetta strax upp við þá. Þetta er skortur á góðum íþróttaanda, og það sagði ég við þá. Ef einhver sem ég virði ekki gerir svona, myndi ég ekki tala við viðkomandi aftur,“ sagði þjálfarinn við norsku sjónvarpsstöðina. Þjálfarinn er langt frá því að vera sá eini sem mislíkaði viðbrögðin. „Geturðu slakað á í tvær sekúndur?“ „Þegar hann snýr sér við, þá velti ég fyrir mér hvort hann ætli að kýla hann niður. Ég hefði orðið svo reið. „Geturðu slakað á í tvær sekúndur?“ Þetta er ekkert notalegt. Ég þekki þjálfarann vel og hann er svona týpa,“ sagði Maria Tviberg, sérfræðingur NRK í alpagreinum, í myndverinu eftir keppnina. Atle Lie McGrath lét allar tilfinningar flæða þegar gullið rann honum úr greipum í svigkeppni Ólympíuleikanna. Absolute heartbreak for Atle Lie McGrath 💔He throws his skis in the air, storms off and has a lie down in the snow to process the mistake that lost his shot at Olympic gold 😲💥 pic.twitter.com/D7pu9c4TFc— TNT Sports (@tntsports) February 16, 2026 „Þetta var svolítið óíþróttamannslegt. Ég hefði ekki gert þetta ef ég væri svissneskur þjálfari. Ég skil að hann sé glaður, en þeir hafa tekið þrjú gull á þessu móti. Þeir hafa haft nóg að fagna,“ sagði fyrrverandi Ólympíumeistarinn Kjetil André Aamodt. „Þetta var svolítið sérstakt. Þetta getur verið innsæi á staðnum, en ég held að hann hafi ekki meint neitt með því,“ bætti hann við. Eftir að McGrath kom sér niður úr skóginum gekk hann út af leikvangssvæðinu með hettu yfir höfðinu án þess að veita viðtöl. „Verður næstum því bara að gefa honum knús“ „Maður verður næstum því bara að gefa honum knús. Maður getur ekki sagt svo mikið. Maður verður bara að komast í gegnum þetta,“ sagði liðsfélaginn Timon Haugan, sem varð í fjórða sæti, við NRK. Svissneski þjálfarinn heldur því fram að hann hafi ekki séð að McGrath keyrði út úr brautinni og að hann hafi ekki fagnað vegna þess sem kom fyrir hann, heldur vegna þess að hann var glaður fyrir hönd Meillard. „Ég sá það ekki. Ég sá ekki hvað kom fyrir Atle. Eftir á sá ég að Atle fór út. Ég áttaði mig á því eftir 20 sekúndur að við erum ólympíumeistarar. Ég er leiður fyrir hönd Atle. Þetta er hræðileg grein,“ sagði þjálfarinn við Dagblaðið. Henrik Kristoffersen, sem vann bronsverðlaun, fannst viðbrögð þjálfarans alveg innan marka. „Það eru svo miklar tilfinningar og þess háttar. Það er ekkert illt í því. Ég þekki svissnesku þjálfarana vel og þetta er fínt og notalegt fólk. Þetta verður að vera í lagi. Við verðum að þola það,“ sagði Kristoffersen við NRK.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjá meira