Segist ekki hafa kallað Vinicius apa og Benfica bakkar hann upp Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. febrúar 2026 08:02 Benfica vill meina að Vinicius hafi ekki verið nógu nálægt Prestianni til að heyra það sem hann sagði. Eric Verhoeven/Soccrates/Getty Images Gianluca Prestianni stendur frammi fyrir ásökunum um rasisma í garð Vinicius Jr. í 0-1 tapi Benfica gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöld. Vinicius segir hann hafa kallað sig apa en Prestianni segir þetta allt saman einn stóran misskilning og Benfica stendur með honum.
Eftir mark Vinicius í upphafi seinni hálfleiks hljóp allt í háaloft. Vinicius fagnaði markinu með því að dansa við hornfánann fyrir framan stuðningsmenn Benfica og fékk gult spjald fyrir. Leikmenn Benfica hrúguðust að honum með fúkyrðaflaum. Vinicius lét svo dómara leiksins vita að hann hefði orðið fyrir kynþáttaníði. Hlé var gert á leiknum í um átta mínútur en dómarinn gat auðvitað ekkert sannreynt hvað hefði verið sagt, því Prestianni huldi munninn svo myndavélarnar gætu ekki lesið varir hans, og leikurinn hélt áfram. Vinicius og Prestianni sendu svo frá sér sitt hvora yfirlýsinguna á Instagram. Vinicius fordæmdi hegðunina og sagðist hafa verið kallaður „api“ og „faggi.“ "I don't like Real Madrid, but i'm a Madridista tonight."Powerful words from Thierry Henry on solidarity across football 🤍 pic.twitter.com/NM3aKXTRMI— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) February 18, 2026 „Ég vil taka það skýrt fram að ég beindi ekki rasískum ummælum að Vinicius á neinum tímapunkti. Vinicius misskildi því miður það sem ég sagði. Mér þykir leitt að þurfa að standa í hótunum frá leikmönnum Real Madrid“ svaraði Prestianni. Leikmenn og þjálfarar Real Madrid hafa staðið við bakið á Vinicius. Alvaro Arbeloa sagðist trúa honum heilshugar og Kylian Mbappé sagðist sjálfur hafa heyrt hann kallaðan apa fimm sinnum. Como demonstram as imagens, dada a distância, os jogadores do Real Madrid não podem ter ouvido o que andam a dizer que ouviram. pic.twitter.com/7JF9AVuhEM— SL Benfica (@SLBenfica) February 18, 2026 Benfica hefur aftur á móti birt myndband af atvikinu og sagt að það sé ekki séns að Vinicius hafi verið nógu nálægt til að heyra það sem Prestianni sagði. Hann virðist samt vera nokkuð nálægt honum á myndbandinu, sem má sjá hér fyrir ofan. Ljóst er allavega að hitastigið verður hátt á Santiago Bernabeu þegar liðin mætast aftur í næstu viku. José Mourinho, þjálfari Benfica, mun þurfa að sitja uppi í stúku á þeim leik eftir að hafa fengið rautt spjald í gær, fyrir að hella sér yfir Vinicius.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Spænski boltinn Portúgalski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti