Norðmaðurinn kominn í mjög fámennan hóp með Michael Phelps Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 18:00 Norðmaðurinn Johannes Hösflot Klæbo tók mynd af sér þegar hann var búinn að vinna þrenn gullverðlaun en núna hefur hann bætt við tveimur í viðbót. @johanneshk Norðmaðurinn Johannes Hösflot Klæbo vann tíundu gullverðlaun sín í skíðagöngu á Ólympíuleikunum í Mílanó Cortina í dag og setti þar með annað met á Vetrarólympíuleikum.
Klæbo, 29 ára, sem keppti með Einar Hedegart, vann liðasprett karla og hlaut þar með fimmta gullið sitt á leikunum 2026, þegar hann kom í mark á tímanum 18 mínútur og 28,9 sekúndur. He's done it 🤯Johannes Høsflot Klæbo is now the second most decorated gold medalist in Olympic history with 10 golds 🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇🥇Only Michael Phelps and his 23 left to chase 😅 pic.twitter.com/xNyj2NS9A7— DW Sports (@dw_sports) February 18, 2026 Með sigrinum varð Klæbo aðeins annar Ólympíufarinn – ásamt bandaríska sundkappanum Michael Phelps – til að vinna að minnsta kosti tíu gullverðlaun á Ólympíuleikum. Það er reyndar mjög langt í að jafna við sundkappann. Phelps vann 23 gullverðlaun á fjórum Ólympíuleikum frá 2004 til 2016, þar á meðal átta sigra á leikunum í Peking 2008. „Það er augljóslega mjög ánægjulegt að láta þetta gerast. Liðaspretturinn er ein skemmtilegasta greinin en líka ein sú erfiðasta“ sagði Klæbo. Ben Ogden og Gus Schumacher frá Bandaríkjunum voru 1,4 sekúndum á eftir og hlutu silfur, en Elia Barp og Federico Pellegrino frá Ítalíu tóku brons, 3,3 sekúndum á eftir. Klæbo hefur unnið allar keppnir sem hann hefur tekið þátt í á þessum leikum og sló met Vetrarólympíuleikanna í 4x7,5 kílómetra boðgöngunni á sunnudag. Sá norski mun reyna að ná sex af sex á þessum leikum í 50 kílómetra hópræsingu á laugardag. Með sigri myndi Klæbo bætast í hóp þriggja sundmanna – Phelps (tvisvar), Mark Spitz og Kristin Otto – og fimleikamannsins Vitaly Scherbo með að minnsta kosti sex gull á einum Ólympíuleikum. „Það eru svo mörg sterk lið og svo margir hraðskreiðir skíðamenn, þannig að þetta snýst alltaf um harða baráttu. Það gerir þetta enn meira gefandi,“ sagði Klæbo. Johannes Høsflot Klaebo wins his FIFTH medal of Milano Cortina 2026 and a record 10th Olympic gold in cross country skiing 🤯🇳🇴He joins Michael Phelps as just the second Olympian ever to reach 10 or more gold medals 🥇 pic.twitter.com/KeNwyDV3YF— TNT Sports (@tntsports) February 18, 2026
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Liðsstjóri Ferrari á spítala Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Sjá meira