Vinna að nýrri mæliaðferð eftir „typpahneykslið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 23:16 Þjóðverjinn Vinzenz Geiger svekkir sig eftir keppnina í norrænni tvíkeppni þar sem keppt er bæði í skíðastökki og skíðagöngu. Getty/Alex Slitz Orðrómur um typpastækkanir hefur valdið fjaðrafoki í skíðastökksheiminum á Vetrarólympíuleikunum í ár. Nú vinnur Alþjóðaskíðasambandið að því að koma í veg fyrir slíka möguleika á svindli í framtíðinni.
Þetta segir yfireftirlitsmaður sambandsins, Mathias Hafele, í viðtali við þýska stórblaðið Bild. Bild hefur áður birt fréttir um að nokkrir skíðastökkvarar hafi gripið til sprautunálar til að auka stærð typpa sinna. Nú segir yfireftirlitsmaðurinn Hafele að yfirmenn skíðastökksdeildar FIS taki þetta mjög alvarlega. „Við erum þegar byrjuð að vinna á bak við tjöldin að aðferðum til að leysa þetta erfiða vandamál,“ segir Hafele við blaðið. Ekki lengur hægt að svindla Hafele segir enn fremur að FIS vinni að mæliaðferðum sem byggja á beinagrind og beinabyggingu stökkvaranna. Þá verður ekki lengur hægt að svindla á eftirlitinu með því að breyta mjúkvef eins og typpinu sínu. „Við viljum koma nýrri mæliaðferð á fyrir byrjun næsta tímabils. Við hjá FIS vinnum náið með hinum ýmsu þjóðum. Við samræmum okkur einnig við læknanefndina,“ segir yfireftirlitsmaðurinn. Sláandi ásakanir komu fyrst fram í þýska dagblaðinu Bild í því sem nú hefur verið kallað „penisgate“ eða „typpahneykslið“. Bild hefur haldið því fram að íþróttamenn hafi sprautað sýrunni í typpin sín til að svindla á kerfinu þegar þeir eru mældir fyrir búninga sína. Það er háð ströngu eftirliti til að koma í veg fyrir að nokkur íþróttamaður hafi loftaflfræðilegt forskot. Notað í lýtalækningum „Hýalúrónsýra er algengt fylliefni sem notað er í lýtalækningum, þar á meðal sprautur sem notaðar eru við aðgerðir til að auka ummál typpa,“ sagði prófessor Eric Chung, þvagfæraskurðlæknir, Að sprauta hýalúrónsýru í typpið myndi gera það sverara „en þú þyrftir að sprauta miklu af hýalúrónsýru,“ sagði Chung, sem áður var leiðtogi sérfræðiráðgjafahóps í karlfræði fyrir Þvagfélag Ástralíu og Nýja-Sjálands. Hýalúrónsýra hefur tímabundin áhrif og þarf að endurnýja hana á sex til tólf mánaða fresti eftir því hvernig agnirnar frásogast og færast til, sagði Chung. Gætu missti typpið Chung varar við því að það fylgi veruleg áhætta því að sprauta hýalúrónsýru í getnaðarlim, bæði til skamms og langs tíma. „Röng spraututækni eða rangur skammtur getur valdið sársauka í getnaðarlim, lýti, afmyndun, sýkingu, bólgu, skynbreytingum og kynlífsvanda. Í sjaldgæfum tilfellum getur sýking breiðst út og valdið drepi (vefjadauða) og missi getnaðarlimsins,“ sagði Chung.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sjá meira