„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 20:26 Rætt var við frambjóðendurna tvo, Líf Magneudóttur og Finn Ricart Andrason, í kvöldfréttum. Vísir Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum.
Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Flokkurinn ætlar í samstarf við Vor til vinstri og ljóst er að oddviti Vinstri grænna mun skipa annað sæti Vors til vinstri. Valið stendur milli Lífar Magneudóttur, núverandi oddvita Vinstri grænna í Reykjavík, og Finns Ricart Andrasonar. Finnur var oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður í Alþingiskosningunum 2024. Hann segir kosningabaráttuna hafa verið vinalega. „Við erum náttúrlega í sama flokki þannig að það er ekkert eins og við séum að vaða hvort í annað. Mér finnst bara mikilvægt að það sé virkt lýðræði í öllum flokkum,“ segir Finnur. Kynslóðaskipti séu hluti af stjórnmálum og huga þurfi að þeim reglulega. Líf fagnar mótframboði Finns og segir komandi kosningar þær mikilvægustu fyrir vinstrið. Hún spáir snúnum kosningum og segir vinstrið þurfa á hugmyndafræðilegri endurnýjun að halda. „En líka reynslu. Og ég held að ég búi yfir þeirri reynslu sem Reykjavík þarf á að halda og þess vegna býð ég mig fram, til þess að fylgja eftir öllum þeim verkefnum sem við vinstrimenn höfum hrundið af stað í borginni.“ Ætla ekki í formanninn Finnur boðar með sínu framboði auknar áherslur á umhverfis- og náttúruvernd en hann er menntaður í umhverfis- og loftslagsmálum. Þá boðar hann meiri róttækni í húsnæðismálum og samgöngumálum. Líf segist sammála Finni og að í borgarstjórn hafi hún hrundið af stað mörgum verkefnum í húsnæðismálum, þar með talið „nýstárlega uppbyggingu heilu hverfanna“. „Ég held ég hafi migið í saltan sjó,“ segir Líf aðspurð hvað skilji hana og Finn að. „Kannski er það bara það eina. En ég er auðvitað full af krafti og ung í anda.“ Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingmaður flokksins tilkynnti í gær að hún hygðist bjóða sig fram til embættis formanns flokksins á komandi landsfundi. Svandís Svavarsdóttir, núverandi formaður, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram og heldur ekki Guðmundur Ingi Guðbrandsson, núverandi varaformaður. Aðspurð segjast Líf og Finnur ekki hafa í hyggju að bjóða sig fram á móti Rósu en hvorugt þeirra útilokar framboð í önnur embætti. Landsfundurinn fer samkvæmt heimasíðu Vinstri grænna fram helgina 7.-8. mars á Selfossi.
Vinstri græn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Rósa Björk býður sig fram í formann VG Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formann VG. Landsfundur flokksins fer fram í byrjun mars en Svandís Svavarsdóttir núverandi formaður hyggst ekki gefa kost á sér áfram. 19. febrúar 2026 14:46 VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. 13. febrúar 2026 12:12 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
Rósa Björk býður sig fram í formann VG Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formann VG. Landsfundur flokksins fer fram í byrjun mars en Svandís Svavarsdóttir núverandi formaður hyggst ekki gefa kost á sér áfram. 19. febrúar 2026 14:46
VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Framboðið Vor til vinstri auglýsir nú eftir fólki sem hefur áhuga á að gefa kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík. Sanna Magdalena Mörtudóttir fer fyrir framboðslistanum sem ætlar að bjóða fram í bandalagi við Vinstri græn í borginni í vor. Þá hefur félögum í Vinstri grænum í Reykjavík fjölgað um tæplega tuttugu prósent á síðustu vikum en VG heldur forval um efstu sæti sem falla í hlut VG á sameiginlegum lista flokkanna. 13. febrúar 2026 12:12