Með brotnar tennur og lausan kjálkalið eftir samstuð Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. febrúar 2026 13:03 Edoardo Corvi og Ruben Loftus-Cheek skullu saman. Marco Luzzani/Getty Images Ruben Loftus-Cheek er á leið í aðgerð eftir alvarlegt höfuðhögg í leik AC Milan og Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta gærkvöldi.
Loftus-Cheek var fluttur af velli í sjúkrabörum á 11. mínútu leiksins, sem Parma vann 0-1. AC Milan staðfesti svo í morgun að hann myndi gangast undir aðgerð. Loftus-Cheek lenti í árekstri við Edoardo Corvi, markmann Parma, með þeim afleiðingum að hann braut nokkrar tennur í efri gómi og fór úr kjálkalið. Loftus-Cheek var illa leikinn eftir atvikið. sportinfoto/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Í tilkynningu AC Milan segir þó að hann hafi ekki hlotið heilahristing. Myndband sem stuðningsmaður AC Milan birti af atvikinu má sjá hér fyrir neðan. Stuðningsmaðurinn er mjög ósáttur við að vítaspyrna hafi ekki verið dæmd. Il portiere del Parma esce fuori tempo e commette un fallo criminale su Loftus-Cheek. Il tutto in area di rigore e con la palla in gioco. Rigore netto. Ruben portato in ospedale. Il killer Piccicini fa finta di niente, a Lissone i monitor erano spenti. Vi dovete vergognare pic.twitter.com/64TLKyVtLT— Simon Templar ❤️🖤❤️🖤 (@FuSimonTemplar) February 22, 2026 Loftus-Cheek hefur spilað alls 27 leiki í öllum keppnum fyrir AC Milan á tímabilinu, skorað þrjú mörk og gefið eina stoðsendingu. Hann var valinn í enska landsliðshópinn í september síðastliðnum, í fyrsta sinn í sex ár, en var ekki valinn í næsta hóp í nóvember. AC Milan er í öðru sæti ítölsku deildarinnar, tíu stigum frá toppliði Inter eftir tap gærkvöldsins.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira