Rósin áfram í hnappagati Samfylkingarinnar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 17:41 Guðmundur Ingi hafði áður greint frá viðræðum Rósarinnar við Vor til vinstri, en samkvæmt tilkynningu frá Guðnýju Maju verður ekki af slíku samstarfi. Vísir/samsett Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rósinni nú síðdegis, sem send er út í nafni Guðnýjar Maju Riba, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, fyrir hönd stjórnar Rósarinnar. Vísir greindi frá því fyrr í vikunni að Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar og Afstöðu, hafi átt í samtölum við fulltrúa Vors til vinstri um mögulegt samstarf í komandi kosningum. Sjálfur gaf Guðmundur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í borginni en náði ekki að tryggja sér eitt af sex efstu sætum á lista, og í framhaldinu sló í brýnu á milli hans og kjörstjórnar Samfylkingarinnar og að endingu fékk hann ekki sætti á lista flokksins í öðrum sætum heldur. „Stjórn Rósarinnar hefur lokið viðræðum við stjórnmálaflokkinn Vor til vinstri um mögulegt samstarf vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Samtölin voru málefnaleg og uppbyggileg og rík samstaða var um mörg þau málefni sem brenna á báðum hreyfingum. Við þökkum fyrir góð samskipti og samtal um sameiginlega sýn á félagslegt réttlæti, velferð og breiðari þátttöku í stjórnmálum,“ segir meðal annars í tilkynningunni sem barst frá Rósinni í dag. Að undangengnu mati hafi stjórn Rósarinnar ákveðið einróma að halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar og muni styðja flokkinn í komandi kosningum. „Skýr vilji stjórnar er að vinna að festu, samstöðu og ábyrgri málefnalegri vinnu. Ferlið hefur verið lærdómsríkt og undirstrikað mikilvægi opinnar umræðu um fordóma og stöðu jaðarsettra hópa í samfélaginu. Rósin hefur um árabil lagt sitt af mörkum til þeirrar umræðu og mun halda þeirri vinnu áfram af ábyrgð og festu,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Þá er félögum í Samfylkingunni í Reykjavík sendar hamingjuóskir með framboðslista flokksins sem kynntur var í heild sinni í gær. „Rósin mun áfram starfa af heilindum að þeim málefnum sem félagið hefur ávallt lagt áherslu á. Málefni jaðarsettra og efnaminni hópa verða áfram í forgrunni og markmið okkar er að styrkja jafnaðarstefnuna innan Samfylkingarinnar,“ segir að lokum í tilkynningunni.
Samfylkingin Vor til vinstri Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira