„Nú verður fjör” hjá Sjálfstæðismönnum sem kynna lista í Mosó Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 20:13 Elísabet Ólafsdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Hilmar Gunnarsson og Jana Katrín Knútsdóttir. Salome er í heiðurssæti listans á meðan hin þrjú skipa efstu sætin. aðsend mynd Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur nú svipt hulunni af sínum lista yfir frambjóðendur flokksins í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri og Mosfellingur leiðir listann, en í öðru og þriðja sæti eru þær Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Mosfellsbæ, en fulltrúaráð flokksins í sveitarfélaginu samþykkti listann í gærkvöldi, en hann má sjá í heild sinni hér neðar í fréttinni. „Listinn er skipaður öflugum einstaklingum með fjölbreytta reynslu og á öllum aldri þar sem yngsti frambjóðandinn er 19 ára og sá elsti 98 ára. Þar fer saman fólk með ólíkan bakgrunn en sameiginlega sýn um að varðveita þann einstaka anda sem fylgt hefur bænum í gegnum tíðina og einlægan vilja til að gera gott samfélag enn betra.” segir í tilkynningu frá fulltrúaráðinu. Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ í kosningunum í vor.Aðsend Hilmar Gunnarsson oddviti segir það heiður að leiða hópinn inn í kosningabaráttuna að því er haft er eftir honum í tilkynningunni. „Ég er bæði gríðarlega þakklátur fyrir það traust sem okkur er sýnt og virkilega stoltur af þessum hópi. Hér eru einstaklingar sem þekkja Mosfellsbæ vel, sem búa hér með fjölskyldum sínum, starfa í bænum og taka virkan þátt í samfélaginu. Á listanum erum við með bónda, partývél, heiðursborgara, klæðskera, sáttamiðlara og bara alla flóruna, svo það eru allar líkur á að það verði gaman hjá okkur næstu vikurnar,” er haft eftir Hilmari. „Ég hlakka til að hitta bæjarbúa, heyra hvað brennur á fólki og ræða framtíð Mosfellsbæjar. Við erum með skýrt markmið, það er gott að búa í bænum og þannig viljum við hafa það áfram. Við viljum leggja okkar af mörkum fyrir heimabæinn og halda áfram að byggja hér upp gott samfélag þar sem allt í senn fjölskyldur, atvinnulíf og menning fá að blómstra. Nú verður fjör.” Listann í heild má finna hér að neðan: 1. Hilmar Gunnarsson - Ritstjóri og Mosfellingur 2. Jana Katrín Knútsdóttir - Bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur 3. Elísabet S. Ólafsdóttir - Sáttamiðlari 4. Hjörtur Örn Arnarson - Landfræðingur 5. Þórarinn Örn Andrésson - Framkvæmdastjóri 6. Ásgeir Sveinsson - Bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri 7. Magnús Ingi Ingvarsson - Framkvæmdastjóri 8. Brynja Hlíf Hjaltadóttir - Lögmaður 9. Nanna Björt Ívarsdóttir - Laganemi 10. Elín María Jónsdóttir - Húsmóðir 11. Árni Bragi Eyjólfsson - Rekstrarstjóri 12. Katrín Dögg Hilmarsdóttir - Golfkennari 13. Jón Magnús Jónsson - Bóndi 14. Gunnhildur Einarsdóttir - Íþróttafræðingur og flugfreyja 15. Þorsteinn Birgisson - Formaður Félags aldraðra í Mosfellsbæ 16. Halldóra Sif Guðlaugsdóttir - Fatahönnuður og klæðskeri 17. Jódís Lilja Jakobsdóttir - Kennari 18. Alexander V. Kárason - Frumkvöðull 19. Hafrún Hafliðadóttir - Kennari 20. Nína Huld Leifsdóttir - Hárgreiðslumeistari 21. Aron Valur Gunnlaugsson - Athafnamaður 22. Salome Þorkelsdóttir - Heiðursborgari
Sjálfstæðisflokkurinn Mosfellsbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira