Framúrskarandi skóli án hugsunar? Perla Hafþórsdóttir skrifar 1. mars 2026 15:32 Það er nauðsynlegt að ígrunda reglulega í hverju góð menntun felst. Stjórnendur, kennarar, nemendur, foreldrar og almennir borgarar ættu að spyrja sig hvers vegna, hvernig og í þágu hvers? Ég endurnýjaði fyrir stuttu kynni mín af Beverly Hills 90210, rúmlega þrjátíu ára gömlum þáttum sem fjalla um unglinga sem ganga í skóla í Beverly Hills þar sem flestir eru ríkir og einstaklingshyggja og kapítalismi eru allsráðandi. Tvíburasystkinin, Brenda og Brandon eru í aðalhlutverkum og eru í upphafi þáttanna nýflutt frá Minnesota og alls óvön þessu samfélagi. Þau virðast vera þau einu sem eiga nokkuð eðlilegt fjölskyldulíf þar sem flestar aðrar persónur þáttanna eiga foreldra sem hafa ekki tíma til að sinna þeim vegna allsráðandi lífsgæðakapphlaups. Síðasti þáttur sem ég horfði á fékk mig til að hugsa um þá tilhneigingu í samfélagsumræðunni að líta á menntun sem keppni. Umræddur þáttur, sem ber heitið „Higher Education“, hefst á því að Brandon situr í sögutíma hjá gömlum kennara sem leggur fyrir próf upp úr efninu á hverjum föstudegi. Spurningar hans eru býsna erfiðar og jafnvel kvikindislegar. Brandon fær C á fyrsta prófinu þrátt fyrir aðeins þrjár villur. Hann er ósáttur við einkunnina en Steve skólafélagi hans fær A. Brandon heldur þess vegna að það sé góð hugmynd að læra fyrir prófin með þessum klára skólafélaga en í ljós kemur að sá hefur rænt eintaki af öllum prófunum og notar þau til þess að svindla. Brandon ákveður að fara að dæmi hans til þess að fá góðar einkunnir og hækka meðaltal sitt, þar sem allt virðist snúast um að fá góðar einkunnir og komast inn í réttan háskóla, líklega til þess að fá þar aðgöngumiða í lífsgæðakapphlaupið sem bíður þeirra. Brandon er með mikið samviskubit yfir þessu en þegar kennarinn kemur að borða á veitingastað sem Brandon vinnur á, tekur hann eftir að kennarinn kemur öðruvísi fram við hann eftir að hann hefur fengið hærri einkunn. Hann reiðist og gagnrýnir kennarann fyrir að nota kennsluaðferðir sem snúast um páfagaukalærdóm en krefji nemendur ekki um að hugsa eða túlka námsefnið. Kennarinn kemst svo að því að Brandon er að svindla en í stað þess að koma upp um hann ákveður hann að taka mark á gagnrýninni og breyta um taktík. Á næsta föstudegi dreifir hann prófblöðum á borð nemenda og biður þau svo um að rífa blöðin. Hann segist hafa notað sömu prófin og sömu aðferðir í 15 ár en nú eigi nemendur að skrifa ritgerð þar sem þau velta fyrir sér af hverju forverar þeirra í sögunni hafi hagað sér eins og þeir gerðu. Það má segja að námið í West Beverly High sé aðeins til þess fallið að undirbúa nemendur fyrir framhaldsnám og þarfir atvinnulífsins þar sem menntun á að stuðla að efnahagslegri velsæld. Þátturinn dregur upp fáránleika þess þegar skólakerfið er hugsað eins og keppni. Keppni um bestu einkunnirnar, til þess að komast í besta háskólann til þess að eignast flottasta húsið með stærstu sundlauginni. Þó að Aðalnámskrá innihaldi orðalag eins og jöfn tækifæri nemenda og að stefnt sé á að mæta ólíkum þörfum þeirra sem og að tryggja velferð í nútíð og framtíð þá finnst mér samt smjúga inn þessi sami undirtónn um að skólaganga sé keppni. Það eru orðin „framúrskarandi“ og áherslan á „árangur“ sem koma upp um hana. Mér er spurn, hvað felst í framúrskarandi menntun og árangri? Þurfa íslenskir nemendur að standa sig betur en nemendur annarra landa? Er námsárangur alltaf mælanlegur? Ef við gefum okkur að þekking sé uppbyggð þannig að hún leggist ofan á þá reynslu og þekkingu sem fyrir er, getur námsárangur þá ekki komið í ljós löngu eftir að formlegri skólagöngu lýkur? Aðalnámskrá hefur verið gagnrýnd af kennurum og foreldrum fyrir að vera óskýr og háð túlkunum. En kennsla á heldur ekki að vera eins og að horfa á sömu sjónvarpsþættina aftur og aftur. Þú átt ekki að geta brotið saman þvott eða skrollað á instagram á meðan persónurnar fylgja handriti sem þú kannt utan að. Eins og ég sagði í upphafi þá er nauðsynlegt að ígrunda reglulega í hverju góð menntun felst. Það er nauðsynlegt að meta nemendur til þess að fylgja eftir námsframvindu þeirra svo hægt sé að styðja við þá og efla. Námsmat gefur kennurum og stjórnendum skóla einnig góða vísbendingu um hvar þurfi að endurskoða og bæta kennslu ásamt því að veita foreldrum nauðsynlega innsýn í það hvernig börn þeirra standa. Góð menntun felur þannig í sér samstarf en ekki samkeppni. Snúum okkur nú aftur að vinum okkar í Beverly Hills. Brandon benti kennaranum réttilega á að nemendur ættu að vera virkir þátttakendur í eigin námi og fá vettvang til þess að hugsa í stað þess að taka gagnrýnislaust á móti námsefninu. Ef framúrskarandi árangur er aðalmarkmiðið með menntun þá væri Steve, vinurinn sem svindlaði, hinn fullkomni nemandi. Til hvers að leggja á sig að hugsa ef ekkert skiptir máli nema góð einkunn? Höfundur er Uppeldis- og menntunarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun