Sport

„Hefðum þurft að hitta betur fyrir utan“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Elvar Már Friðriksson leikmaðir Íslenska liðsins.
Elvar Már Friðriksson leikmaðir Íslenska liðsins. vísir/Hulda Margrét

Ísland tapaði nokkuð sannfærandi fyrir Litháum í undankeppni HM í körfubolta í kvöld. Eftir magnaðan endurkomusigur á föstudaginn gegn þeim fékk Íslenska liðið sautján stiga skell í Klaipeda í kvöld 99-82.Elvar Már Friðriksson hetjan okkar úr fyrri leik liðana var til tals hjá Herði Unnsteinssyni fyrir Rúv eftir leik. 

„Þeir voru bara fáránlega líkamlega sterkir og ýttu okkur út úr þægindarrammanum sóknarlega og þeir settu mikla pressu á hringinn í sókninni hjá þeim og þetta var bara drullu erfitt“ sagði Elvar Már Friðriksson eftir leik í kvöld.

Hvað var það sem vantaði hjá Íslenska liðinu í kvöld?

„Við hefðum þurft að hitta betur fyrir utan. Við hittum illa og ætli Kristinn [Pálsson] hafi ekki verið sá eini sem setti einhver þriggja stiga skot“

„Við hefðum þurft að hitta betur fyrir utan til þess að geta hleypt þessu upp í aðeins óþægilegri leik fyrir þá. Þeir gátu límt sig svolítið vel á okkur bara því við vorum ekki að hitta og gerðum okkur einhvernveginn allt bara erfitt fyrir“

Riðill Íslenska liðsins er gríðarlega jafn og gætu öll liðin endað jöfn af stigum eftir þessa umferð. Í sumar mætum við Ítölum og Bretum en þrjú lið fara áfram úr þessum riðli.

„Þegar það kemur að því þá gerum við okkur tilbúna fyrir það. Við klárum allir tímabilið bara með okkar félagasliðum og svo gírum við okkur upp í sumar stemningu og reynum að koma okkur áfram í milliriðilinn og þá er bara meiri veisla framundan“ sagði Elvar Már Friðriksson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×