„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Lovísa Arnardóttir skrifar 4. mars 2026 08:30 Íris segir óboðlegt að siglt sé til Þorlákshafnar vikum saman vegna bilunar dýpkunarskips í Landeyjahöfn. Vísir/Vilhelm og Saga Sig Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.
Íris tilkynnti nýlega að hún ætlaði ekki fram aftur en Fyrir Heimaey. Íris segir góðan tíma núna, eftir átta ár í bæjarstjórn, að staldra við og hætta. Hún segir Vestmannaeyjabæ á góðum stað, fyrir utan samgöngumálin. „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur í því,“ segir Íris spurð hvort hún myndi taka það að sér að vera ráðin bæjarstjóri. Það sé ekki einu sinni búið að kynna lista alls staðar á landinu. „Á þessari stundu er bara nýr kafli að hefjast í vor og ég myndi taka afstöðu til þess ef til þess kæmi. En staðan er þannig núna að mér líður vel með þessa ákvörðun.“ Hún segir einnig opið að fara „upp á land“ og ef maður ætli að breyta til „geti maður ekki verið tré“. Fjallað var um sögusagnir þess efnis fyrr í vikunni að Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi og fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, væri hugsanlegt bæjarstjórefni. Elliði vísaði þessum sögusögnum á bug og sagðist ekki á leið til Eyja aftur. Óboðlegt að ekki sé hægt að dýpka Íris segir Vestmanneyinga „alveg að missa kúlið“ hvað varðar samgöngumál til eyjunnar. Hún segir Íslendinga alltaf að bregðast við en aldrei viðbúna. Álfsnesið sé búið að vera að dýpka en á mánudag bili vél og það geti tekið allt að fjórar vikur að dýpka höfnina. „Við erum komin þann tíma á árinu þar sem venjulega er verið að opna höfnina,“ segir Íris en í tilkynningu frá Vegagerðinni um bilunina fyrr í vikunni kom fram að á meðan ekki væri hægt að dýpka höfnina yrði siglt til Þorlákshafnar. Íris gagnrýndi þetta harðlega fyrr í vikunni og sagði þessa stöðu óásættanlega. Hún segir óásættanlegt að það sé „ekkert plan B“ þegar skipið bilar. „Við getum ekki sætt okkur við það að vera með þessar samgöngur í Landeyjahöfn, sem eru svo frábærar þegar þær virka, en það eru svo miklir hnökrar á þeim á ákveðnum tíma ársins að það verður að stíga inn og laga það og taka ákvörðun,“ segir Íris. Hún segir samgöngur hafa verið erfiðar í vetur og oft siglt til Þorlákshafnar. Þetta sé mikil skerðing og bæjarfélagið fari fram á það við Vegagerðina að það verði brugðist við. Til að setja málið í samhengi bendir Íris á að sjóferðin til Þorlákshafnar sé rúmir þrír tímar og aðeins sé farið tvær ferðir á dag, til Landeyjahafnar sé siglt sjö sinnum og ferðin sé 40 mínútur. „Við erum á loðnuvertíð núna og þetta hamlar flutningum til og frá Eyjum,“ segir hún og að það séu fáir klefar um borð í skipinu og fólk vilji klefa þegar það siglir til Þorlákshafnar vegna lengdar ferðarinnar. Þá sé þetta skerðing við íbúana, fyrirtækin og þau sem vilja heimsækja eyjuna. Hún segist mæta miklum skilningi hvert sem hún fer en sá skilningur sé í „orði en ekki á borði.“ Íris segir að ef það eigi að halda landinu í byggð þurfi að tryggja samgöngur milli staða. Hún segir Vestmannaeyinga ekki biðja um neinn lúxus, heldur að samgönguleiðunum þeirra sé haldið opnum og það sé ekki boðlegt að þegar skipið bili sjái þau fram á margra vikna töf. Hún segir þessu einnig fylgja mikill kostnaður fyrir íbúana. Til dæmis þurfi þeir lengri frí ef þeir ætla að sækja sér ákveðna þjónustu, fraktflutningar séu púsluspil. Jarðgöng betri kostur Hún segir unnið að skýrslu um Landeyjahöfn í Háskóla Íslands. Höfnin sé í raun ekki tilbúin og á meðan hún sé það ekki þurfi að moka mikinn sand og það sé kostnaðarsamt. Hún segir göng betri valkost og það sé verkefni sem sé komið í gang hjá einkaaðilum og sveitarfélögum. Hún segir Vestmannaeyjabæ ekki vilja ryðjast fram fyrir í jarðgangaröðinni heldur séu þau til í að borga. „Það er greiðsluvilji í Vestmannaeyjum. Við borgum gríðarlega mikla vegtolla alla daga og við erum til í að borga þau í gegnum göngin.“ Hún segir raunsætt að miðað við bestu plön gætu göng verið tilbúin eftir tíu ár. Það þurfi að gera rannsóknir á berginu í Landeyjahöfn og Vestmannaeyjum og kortleggja botninn og þá sé hægt að komast að því hvað það kostar. „Og þetta má kosta ansi mikið til þess að þetta sé þjóðhagslega hagkvæmt.“
Vegagerð Vestmannaeyjar Ölfus Samgöngur Herjólfur Rangárþing eystra Landeyjahöfn Jarðgöng á Íslandi Bítið Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Dagný Ósk látin Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Sjá meira