„Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Smári Jökull Jónsson skrifar 7. mars 2026 18:11 Donald Trump er duglegur að tjá sig á Truth Social. Vísir/Getty Donald Trump skrifaði færslu á samfélagsmiðil sinn Truth Social þar sem hann segir að ráðist verði harkalega gegn Íran í dag vegna slæmrar hegðunar Írana. Landið sé ekki lengur eineltisseggur Mið-Austurlanda heldur ræfill svæðisins.
Trump hafði áður skrifað færslu í gær þar sem hann útilokaði samkomulag við klerkastjórnina í Íran. Fregnir hafa borist af því í dag að nýr æðsti leiðtogi gæti verið valinn strax á morgun en hann hefur lokaákvarðanarétt í öllum stórum ákvörðunum ríkisins. Trump sagði fyrr í dag hann myndi sjálfur vilja vera með í ráðum þegar nýr leiðtogi yrði valinn en slíkt virðast Íranir ætla láta sem vind um eyru þjóta. Segir Bandaríkjamenn vera að berja Írani til helvítis Skrif Trump eru viðbrögð við orðum Masoud Pezeshkian Íransforseta í morgun þar sem hann sagði uppgjöf Írans ekki koma til greina um leið og hann baðst afsökunar á árásum Írana á nágrannaríkin síðustu daga. Trump segir að verið sé að „berja Íran til helvítis“ og segir að afsökunarbeiðni Pezeshkian sé aðeins tilkomin vegna linnulausra árása Ísraela og Bandaríkjamanna. Þetta sé í fyrsta skipti sem Íranir tapi baráttu gegn nágrannaríkjunum. „Íran er ekki lengur eineltisseggur Mið-Austurlanda, þess í stað eru þeir ræflar svæðisins og verða í áratugi hér eftir þangað til þeir gefast upp eða það sem er líklegra, hrynja til grunna,“ skrifaði Trump meðal annars. Tekur á móti föllnum Þá sagði Trump við fjölmiðla í morgun að Bandaríkjamenn væru að standa sig afar vel í Íran og hefðu tekið út 42 herskip Írana á þremur dögum. Þá væri hann á leið til Delaware til að taka á móti líkum fallna hermanna og sagði jafnframt að Bandaríkjamenn myndu halda tölu fallinna í algjöru lágmarki. Trump sagðist munu heilsa upp á fjölskyldur þeirra sem hafa fallið og væru að koma heim á annan hátt en búist var við. „Þeir eru hetjur í okkar landi og við munum sjá til þess að svo verði áfram. Þegar stríð er annars vegar þá er þetta alltaf svona,“ bætti Trump við og vísaði þá til fallinna hermanna.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira