„Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 08:02 Fyrirliðinn Cristian Romero reynir að hughreysta Antonin Kinsky eftir að hann var kallaður af velli. Getty/Alberto Gardin Antonin Kinsky, 22 ára markvörður Tottenham, upplifði algjöra martröð í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann var tekinn af velli á sautjándu mínútu eftir að hafa gefið tvö mörk og fengið á sig þrjú. Kinsky og skiptingin voru til umræðu í Meistaradeildarmörkunum eftir leikinn.
Vicario hafði byrjað nær alla leiki Tottenham á leiktíðinni en Igor Tudor tók þá ákvörðun að henda honum út úr liðinu fyrir þennan mikilvæga Meistaradeildarleik á móti Atletico Madrid. „Ef við byrjum á ákvörðuninni að setja óreyndan mann í markið þarna, eins og Tottenham-liðið er núna, hjá stjóra sem liggur undir ámæli. Hvað finnst ykkur um þá ákvörðun? Hún er djörf alla vega,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson. Búinn að vera ein taugahrúga „Já, mjög djörf og líka ef Igor Tudor væri búinn að skoða eitthvað af síðustu leikjum hjá Kinsky. Hann er búinn að vera ein taugahrúga í þeim leikjum sem hann hefur spilað,“ sagði Albert Brynjar Ingason. Klippa: Umræða um Kinsky og skiptinguna á sautjándu mínútu „Hann kom sterkur inn þegar hann var keyptur og leit vel út í byrjun. Svo fór þetta allt niður á við hjá honum. Vicario hefur átt að verja nokkur skot sem hafa endað inni og hefur átt hikandi úthlaup eins og á móti Palace. En hann er alla vega ekki stressaður,“ sagði Albert. Kjartan Henry Finnbogason benti á það hvað hann hafi verið mjúkur á móti Arsenal. Þetta er skelfilegt „Já, hann er mjúkur en hann er engin taugahrúga. Kinsky er bara ekkert tilbúinn í þetta,“ sagði Albert. „Ég hugsa að hann hafi haldið að Sörloth myndi byrja þennan leik, stór, sterkur og því kannski eitthvað pælt í föstum leikatriðum. En þetta er skelfilegt,“ sagði Kjartan Henry. „Svo er það þessi ákvörðun eftir þetta að taka hann út af þarna á þessum tímapunkti. Hvað finnst ykkur um það,“ spurði Kjartan Atli. Menn muna eftir honum fyrir þetta „Mér finnst það eiginlega ljótt. Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann og við sáum það bara hvernig hann brást við. Hann fór inn í göngin og það voru tveir starfsmenn sem fylgdu honum,“ sagði Kjartan Henry. „Það verður munað eftir honum út af þessum atvikum og að hafa verið tekinn út af á sextándu mínútu af því að þú varst svo lélegur. Mér finnst þessi ákvörðun að byrja ekki með Vicario vera allt í lagi,“ sagði Kjartan Henry. „Þú ert að reyna eitthvað, krydda eitthvað og gera eitthvað annað en að vera í fimm manna vörn. Auðvitað eftir á, þá er það röng ákvörðun. Þetta var náttúrulega einn mesti hauskúpuleikur sem maður hefur séð, bara frá því að Karius, vinur okkar, lauk keppni,“ sagði Kjartan Henry en vísaði þá til Loris Karius sem klúðraði úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir Liverpool árið 2018. Það má finna alla umfjöllunina um skiptinguna hér fyrir ofan.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira